Skipulagsnefnd - 34. fundur
- 25.10.2017
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 17:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 34
- Ritari: Ármann Halldórsson
Nefndarmenn
- Sigurður Guðjón Gíslasonformaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Erla Ósk Wissler Pétursdóttiraðalmaður
- Ólafur Már Guðmundssonaðalmaður
- Pétur Már Benediktssonvaramaður
- Ármann Halldórssonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. Grindavíkurhöfn: Öryggismál
Leitað er umsagnar skipulagsnefndar um fyrirhugaðar breytingar á gatnamótunum.
Tekin fyrir hugmyndaskissa af gatnamótum Ránagötu og Seljabót. Skipulagsnefnd leggur til að innkeyslu inn á bílastæði við hafnarvog verði breytt og færð á vesturhlið. Að öðru leyti tekur nefndin vel í áformin. Sviðstjóra falið að vinna málið áfram með Hafnarstjórn.
2. Grindavíkurhöfn: fyrirspurn um matsskyldu
Hafnarstjórn Grindavíkurhafnar, framkvæmdaaðili fer þess á leit við sveitarstjórn Grindavíkur, með vísan í 6. grein laga um mat á umhverfisáhrifum 106/2000, að ákveða hvort dýpkun í Grindavíkurhöfn sé háð mati á umhverfisáhrifum. $line$Um er að ræða dýpkun framan við nýtt stálþil við Miðbakka á alls um 3 þús. fermetra svæði. Dýpkunarsvæðið er allt hrein klöpp. Áður hefur verið dýpkað í höfninni á svæðum sem liggja að því svæði sem dýpka á nú.$line$
Lagt fram.
3. Lóðaúthlutanir: Reglur
Farið yfir reglur um lóðaúthlutanir. Sviðstjóra falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.
4. Lóðaleigusamningar : Eftirfylgni
Farið yfir núgildandi lóðaleigusamninga. Afgreiðslu frestað.
5. Reglur og gjaldskrá: Gatnagerðargjöld
Farið yfir reglur og gjaldskrá fyrir gatnagerðargjöld. Sviðstjóra falið að vinna málið áfram samræmi við umræður á fundinum.
6. Norðurhóp 62: Umsókn um lóð
Erindi frá Láru Sandholt. Í erindinu er óskað eftir lóðinni Norðurhóp 62. Umsækjandi taldi að fundur skipualgsnefndar væri 23 okt. ekki 16. okt því sendi hann ekki umsókn fyrr, þess vegna set ég hana inn
Erindi frá Láru Sandholt. Í erindinu er óskað eftir lóðinni Norðurhóp 62. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að sviðstjóra verði falið að bjóða umsóknaraðilum á fund og dregið verði um lóðina
7. Norðurhóp 62: Umsókn um lóð
Erindi frá Líney Sif Sandholt. Í erindinu er óskað eftir lóðinni Norðurhóp 62.Umsækjandi taldi að fundur skipualgsnefndar væri 23 okt. ekki 16. okt því sendi hann ekki umsókn fyrr, þess vegna set ég hana inn
Erindi frá Líney Sif Sandholt. Í erindinu er óskað eftir lóðinni Norðurhóp 62. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að sviðstjóra verði falið að bjóða umsóknaraðilum á fund og dregið verði um lóðina.
8. Norðurhóp 62: Umsókn um lóð
Erindi frá Við fjárfestingar ehf. Í erindinu er óskað eftir lóðinni Norðurhóp 62. Umsækjandi taldi að fundur skipualgsnefndar væri 23 okt. ekki 16. okt því sendi hann ekki umsókn fyrr, þess vegna set ég hana inn
Erindi frá Við fjárfestingar ehf. Í erindinu er óskað eftir lóðinni Norðurhóp 62. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að sviðstjóra verði falið að bjóða umsóknaraðilum á fund og dregið verði um lóðina.
9. Hólmasund 4: Umsókn um lóð.
Erindi frá Pure energy ehf. kt. 460116-0150. Í erindinu er óskað eftir lóð við Hólmasund 4. von á formlegri umsókn á mánudag. Þeir eru búnir að fá úthlutaða lóðina við hliðin á þ.e. Hólmasund 2
Erindi frá Pure energy ehf. kt. 460116-0150. Í erindinu er óskað eftir lóð við Hólmasund 4. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt.
10. Mánagata 5: umsókn um byggingarleyfi.
Erindi frá Gunni Magnúsdóttir. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir stækkun og breytingu í íbúðahluta á bílskúr við Mánagötu 5.
Erindi frá Gunni Magnúsdóttur. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir stækkun og breytingu í íbúðahluta á bílskúr við Mánagötu 5. Erindinu fylgja teikningar unnar af Tækniþjónustu SÁ. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að byggingaráformin verði samþykkt með fyrirvara um grenndarkynningu fyrir Túngötu 10 og Mánagötu 7. Byggingarleyfi er gefið út þegar fullnægjandi hönnunargögn berast.
11. Jarðstrengur um Hópsnes. Umsókn um framkvæmdaleyfi.
Erindi frá HS veitum. Í erindinu er óskað eftir framkvæmdaleyfi fyrir lagningu jarðstrengs í vegöxl á Hópsnesi. Með framkvæmdinni er verið að fæða vitann á hós
Erindi frá HS veitum. Í erindinu er óskað eftir framkvæmdaleyfi fyrir lagningu jarðstrengs í vegöxl á Hópsnesi. Með framkvæmdinni er verið að fæða vitann í Hópsnesi. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að framkvæmdaleyfi verði veitt og ítrekar að ekki verði farið út fyrir raskað svæði. Tilkynna skal skipulagsfulltrúa áður en framkvæmdir hefjast.
12. Fjárhagsáætlun 2018-2021: Grindavíkurbær og stofnanir
Skipulagsnefnd leggur til að lögð verði áhersla á að vinna gatnagerð í nyrstu götunni í Víðigerði.