Skipulagsnefnd - 15. fundur
- 14.03.2016
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 17:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 15
- Ritari: Ármann Halldórsson
Nefndarmenn
- Sigurður Guðjón Gíslasonformaður
- Þórir Sigfússonaðalmaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Erla Ósk Wissler Pétursdóttiraðalmaður
- Ólafur Már Guðmundssonaðalmaður
- Ármann Halldórssonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. Umsókn um byggingarleyfi: Austurvegur 1.
Tekið fyrir umsókn um byggingarleyfi frá tæknideild Grindavíkur. Í umsókninni er sótt um byggingarleyfi fyrir nýrri suðurhlið á Austurveg 1. Erindinu fylgja teikningar unnar af Batteríinu Arkitektum merktar 1533-FRUMDRÖG 22.02.2016. Skipulagsnefnd leggur ríka áherslu að gluggakerfið standist álagskröfur.Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin.
2. Breyting á deiliskipulagi: Reykjanesvirkjun.
Erindi frá HS Orku kt. 680475-0169. Í erindinu er óskað eftir leyfi til breytingar á deiliskipulagi Reykjanesvirkjunar skv. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Einnig er óskað eftir mati Grindavíkurbæjar á því hvort breytingin teljist óveruleg sbr. 2. mgr. 43. gr. Í breytingunni er fyrirhugað að stækka stöðvarhús, skiljustöðvar og hreinsimannvirkja. Stækkanirnar eru innan núverandi byggingarreits en nýtingarhlutfall hækkar. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytinguna sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að hún verði grenndarkynnt fyrir Stolt Seafarm og Haustak.
3. Umsókn um lóð: Svæði við Hafnargötu 6.
Erindi frá Bergbúa ehf. kt. 680406-1620. Í erindinu er óskað eftir að fá úthlutað svæði undir 200 m2 gistiheimili til móts við Hafnargötu 6. í tillögu að deiliskipulagi fyrir svæðið er ekki gert ráð fyrir byggingarreit á umræddu svæði. Skipulagsnefnd hafnar erindinu en felur skipulagsfulltrúa að benda umsækjanda á aðra mögulega staðsetningu.
4. Umsókn um byggingarleyfi: fjarskiptamastur við Víkurbraut 25.
Málinu frestað. Sviðsstjóra falið að að boða umsækjanda á næsta fund nefndarinnar.
5. Gamli bærinn: deiliskipulag
Tillaga að deiliskipulagi gamla bæjarins tekin fyrir eftir auglýsingu. Alls bárust fjórar athugasemdir frá almenningi og umsagnir bárust frá Minjastofnun, Vegagerð og Umhverfisstofnun. Skipulagsfulltrúi leggur fram drög að svörum og viðbrögðum við umsögnum og athugasemdum.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan verði samþykkt og sviðsstjóra verði falið það til fullnaðarafgreiðslu skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að svara þeim sem gerðu athugasemdir sbr. drög sem voru lögð fram.6. Deiliskipulag: Víðihlíð og nágrenni
Tillaga að deiliskipulagi Víðihlíðar og nágrennis tekin fyrir eftir auglýsingu. Þrjár athugasemdir bárust frá almenningi, enn hafa ekki borist umsagnir frá Umhverfisstofnun og Heilbrigðiseftirliti. Í athugasemdum frá almenningi er mótmælt byggingarreit suður af Víðihlíð og tillaga að annarskonar fyrirkomulagi fylgir einni þeirra. Skipulagsnefnd samþykkir innkomnar athugasemdir að hluta og verður umræddur byggingareitur tekin út af tillögunni. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt og sviðsstjóra verði falið það til fullnaðarafgreiðslu skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 geri Umhverfisstofnun og Heilbrigðiseftirlit ekki athugasemdir. Einnig verði sviðstjóra falið að svara þeim sem gerðu athugasemdir á þann hátt að tekið verði tillit til athugasemda er varða byggingarreit suður af Víðihlíð og ekki komi nýr byggingarreitur í staðinn.
7. Efrahóp 8: umsókn um byggingarleyfi
Málinu frestað.
8. Seljabót 1: Umsókn um byggingarleyfi, niðurrif
Málinu frestað.
9. Umsókn um byggingarleyfi: Sólskáli við Laut 35.
Málinu frestað.
10. Leynisbrún 7: Umsókn um rekstur bílaleigu.
Málinu frestað.
11. Skipulagsnefnd: Samþykkt
Málinu frestað.
12. Samþykkt um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa
Málinu frestað.
13. Afgreiðslunefnd byggingamála - 8
Lagt fram
Málinu frestað.