Skipulagsnefnd - 43. fundur
- 23.08.2018
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:15
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 43
- Ritari: Ármann Halldórsson
Nefndarmenn
- Guðmundur L. Pálssonformaður
- Ólafur Már Guðmundssonaðalmaður
- Anton Kristinn Guðmundssonaðalmaður
- Lilja Ósk Sigmarsdóttiraðalmaður
- Gunnar Már Gunnarssonaðalmaður
- Ármann Halldórssonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. Gerðavellir 17: umsókn um byggingarleyfi
Grindavíkurbær sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á Gerðavöllum 17. Erindinu fylgja teikningar unnar af Tækniþjónustu SÁ.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt.2. Umsókn um deiliskipulag: rannsóknaborholur í Svartsengi
Erindi frá HS Orku. Í erindinu er óskað eftir heimild til þess hefja vinnu á deiliskipulagi fyrir rannsóknaborholur í Svartsengi. Erindinu fylgir skipulags- og matslýsing. Lýsing verkefnis er unnin skv. 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 6. gr. laga nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana.
Boranir á vinnsluholum og rannsóknarboranir vegna háhitavinnslu eru tilkynningaskyldar til ákvörðunar um matsskyldu, sbr. lög um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000.
Fyrirhugað deiliskipulag tekur til tveggja rannsóknarbolusvæða, sem staðsett eru hjá bílastæði við útivistarsvæðið á Svartsengi og hjá gígnum Arnarsetri, sbr. iðnaðarsvæði i11 og i12 í Aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2030
Málinu frestað, sviðsstjóra falið að afla frekari gagna.3. Breyting á deiliskipulagi: rannsóknaborholur í Svartsengi
Málinu frestað. Sviðsstjóra falið að afla frekari gagna.
4. Fiskeldi á iðnaðarsvæði i5: Matsáætlun.
Beiðni um umsögn. Erindi frá skipulagsstofnun. Í erindinu er óskað eftir umsögn Grindavíkurbæjar skv. 10. gr. laga nr. 106/200 á frummatskýrslu vegna ofangreindrar framkvæmdar.
Matorka starfrækir fiskeldi í Húsatóftum í Grindavík, bæði í eldri stöð með 200 tonna leyfi og í nýrri stöð sem er með 3.000 tonna leyfi. Nú er verið að sækja um stækkun á fiskeldi fyrir stöð staðsettu á skipulagssvæði i5 úr 3.000 tonnum í 6.000 tonn.
Skipulagsnefnd telur að vel sé gert grein fyrir framkvæmdinni í skýrslunni.
Skipulagsnefnd telur valkost 3 er varðar fráveitu á bls. 70 og 71 sem er út fyrir stórstraumsfjöru vænlegasta kostinn.
Að öðrum kosti gerir skipulagsnefnd ekki athugasemd við hvernig er gert ráð fyrir framkvæmdinni og umhverfi, umhverfisáhrifum og mati framkvæmdaaðila á þeim og telur að ekki þurfi að kanna aðra þætti mótvægisaðgerðir eða vöktun að svo stöddu. Umrædd framkvæmd er háð framkvæmdaleyfi og byggingarleyfi hjá Grindavíkurbæ.5. Umsókn um framkvæmdaleyfi: Grindavíkurvegur
Erindi frá Vegagerðinni. Í erindinu er óskað eftir framkvæmdaleyfi fyrir breikkun Grindavíkurvegar á kafla. Erindinu fylgja teikningar unnar af Eflu Verkfræðistofu og Vegagerð dagsett í ágúst 2018. Gögnin lýsa framkvæmdinni á fullnægjandi hátt.
Skipulagsnefnd fagnar framkvæmdinni og leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt með vísan í aðalskipulag Grindavíkur 2010-2030 og reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012.6. Lóðaúthlutanir: Reglur
Málinu frestað, formanni og sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.
7. Ósk um breytta notkun: Víkurbraut 25
Erindi frá Kjartani Sigurðssyni Í erindinu er óskað eftir breyttri notkun á matshluta 202 á Víkurbraut 62. Matshlutinn er nú skrifstofa og óskað er eftir því að matshlutinn verði breytt aftur í íbúðarhúsnæði.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt með fyrirvara um þinglýsta breytingu á eignaskiptasamning.8. Staðarhraun 14: umsókn um byggingarleyfi
Jón V. Guðmundsson sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á þaki bílskúrs. Erindinu fylgja teikningar frá Sigurbjarti Loftssyni og samþykki nágranna.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að byggingaráformin verði samþykkt.9. Umsókn um lóð: Hólmasund 6
H.H. smíði sækir um lóðina Hólmasund 6. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórna að erindið veðri samþykkt
10. Víkurhóp 39-41-43- breyting á deiliskipulagi
Almar Þ.Sveinsson sækir um fyrir hönd Hagafells ehf. breytingu á deiliskipulagi óskað er eftir að fjölga húsum úr 3 í 4.
Skipulagsnefnd telur að breytingin hafi engin áhrif á útsýni, innsýn, skuggavarp né nýtingarmöguleika. Nefndin leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt. Lóðarhafi ber að greiða þann kostnað sem af breytingunni hlýst.11. Víkurhóp 25-27-29- breyting á deiliskipulagi
Almar Þ.Sveinsson sækir um fyrir hönd Hagafells ehf. breytingu á deiliskipulagi, óskað er eftir að fjölga húsum úr 3 í 4.
Skipulagsnefnd telur að breytingin hafi engin áhrif á útsýni, innsýn, skuggavarp né nýtingarmöguleika. Nefndin leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt. Lóðarhafi ber að greiða þann kostnað sem af breytingunni hlýst.12. Víkurhóp 45-47-49-51- umsókn um breytingu á deiliskipulagi
Fyrirspurn um breytingu á stærð lóðar við Víkurhóp 31-33-35-37.
Trésmiðja Heimis ehf leggur fram fyrirspurn þess efnis hvort að heimilt sé að minnka lóðir við Víkurhóp 33 og 35 úr 10m breidd í 7,4m þannig að hægt verði að byggja samskonar hús á lóðinni og byggð hafa verið við Norðurhóð 1-5. Lóðir við Víkurhóp 31 og 37 myndu þá stækka sem minnkun miðju lóða nemur.
Lóðarstærðir eftir breytingu:
Nr. Fyrir breytingu Eftir breytingu
31 420m2 493,8m2
33 280m2 207,2m2
35 280m2 207,2m2
37 394m2 467,8m2
Skipulagsnefnd telur að breytingin hafi engin áhrif á útsýni, innsýn, skuggavarp né nýtingarmöguleika. Nefndin leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt. Lóðarhafi ber að greiða þann kostnað sem af breytingunni hlýst.13. Víkurhóp 31-33-35-37- Umsókn um breytingu á deiliskipulagi
Fyrirspurn um breytingu á stærðum lóða við Víkurhóp 45-47-49-51.
Víkurhóp 45-47-49-51
Trésmiðja Heimis ehf leggur fram fyrirspurn þess efnis hvort að heimilt sé að minnka lóðir við Víkurhóp 47 og 49 úr 10m breidd í 7,4m þannig að hægt verði að byggja samskonar hús á lóðinni og byggð hafa verið við Norðurhóð 1-5. Lóðir við Víkurhóp 45 og 51 myndu þá stækka sem minnkun miðju lóða nemur.
Lóðarstærðir fyrir og eftir breytingu:
Nr. Fyrir breytingu Eftir breytingu
45 420m2 493,8m2
47 280m2 207,2m2
49 280m2 207,2m2
51 420m2 493,8m2
Skipulagsnefnd telur að breytingin hafi engin áhrif á útsýni, innsýn, skuggavarp né nýtingarmöguleika. Nefndin leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt. Lóðarhafi ber að greiða þann kostnað sem af breytingunni hlýst.14. Fyrirspurn: sólskáli við Arnahraun 14
Fyrirspurn frá Gretari Val um byggingu sólskála. Framkvæmdin rúmast innan byggingarreits og nýtingarhlufalls.
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin með fyrirvara um fullnægjandi hönnunargögn.15. Deiliskipulag Víkurhóp: Breyting.
Ólafur Már Guðmundsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Skipulagsnefnd samþykkti á 32. fundi að heimila Grindinni að vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi. Tillagan tekur til Víkurhóps 30 og 32. Erindinu fylgja gögn unnin af JEES arkitektum.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt skv. 3.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fyrirvara um grenndarkynningu eigenda Víkurhóps 24, 26 og 28.16. Afgreiðslunefnd byggingarmála - 29
lagt fram.
17. Afgreiðslunefnd byggingarmála - 28
Lagt fram.