Skipulagsnefnd - 38. fundur
- 19.02.2018
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 17:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 38
- Ritari: Ármann Halldórsson
Nefndarmenn
- Sigurður Guðjón Gíslasonformaður
- Þórir Sigfússonaðalmaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Ólafur Már Guðmundssonaðalmaður
- Ármann Halldórssonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. Víðgerði: gatnagerð 2018
Taka þarf formlega ákvörðun um hvaða götu á að taka í Víðigerði ár. 30 mkr. á áætlun.
Fyrirkomulag gatnagerðar tekið fyrir. Sviðsstjóra falið að láta vinna verðkönnunargögn fyrir nyrsta botnlanga í Víðihlíð.
2. Daggæsla : Húsnæðismál
Enn eru vangaveltur um hvort færanlegu húsin egi að vera við Hópsskóla eða Hraunbraut, þar sem Krílakot er.
Sviðsstjóra falið að láta vinna verðkönnunargögn fyrir húsnæði fyrir dagmæður við Hópsskóla.
3. Stangveiðifélag Grindavíkur: Beiðni um afnot af vatnasvæði
Erindi frá Stangveiðfélags Grindavíkur. Í erindinu er óskað eftir því að fá að sleppa fisk í rásina vestur af bót.
Erindi frá Stangveiðifélags Grindavíkur. Í erindinu er óskað eftir því að félagið fái svæði til umráða við Rásina. Skipulagsnefnd vísar málinu til umhverfis-og ferðamálanefndar. Sviðstjóra falið að afla nánari gagna.
4. Austurvegur 26b: fyrirspurn um stækkun
Erindi frá 240 ehf. í erindinu er óskað eftir stækkun á lóð fyrir fjölgun smáhýsa á lóð Austurveg 26b. Gera þarf breytingu á deiliskipulagi ef þá að samþykkja
Erindi frá 240 ehf. Í erindinu er óskað eftir stækkun á lóð fyrir fjölgun smáhýsa á lóð við Austurveg 26b. Skipulagsnefnd felur sviðstjóra að bjóða forsvarsmönnum 240 ehf. á næsta fund skipulagsnefndar.
5. Harbour view: Fyrirspurn um þyrlupall
Erindi frá 240 ehf. Í erindinu er óskað eftir að fá að setja upp þyrlupall austan af Austurvegi 26b.
Erindi frá 240 ehf. Í erindinu er óskað eftir að fá að setja upp þyrlupall austan af Austurvegi 26b. Málinu frestað.
6. Skotsvæði: fyrirspurn
Síðast þegar málið var tekið fyrir var mér falið að kanna möguleika á því að leyfa þeim að vera á svæðinu án þess að breyta aðalskipulagi og gera deiliskipulag. Ég verð að ráðleggja ykkur að farið verði í deiliskipulagsvinnu ef það á að heimila þeim að vera þarna. Að setja upp skotsvæði fylgja framkvæmdir s.s. girðingar, skiltagerð, manir, aðstaða með klósetti og fl. því sé erfitt að heimila þeim þessar framkvæmdir án þess að tryggt sé að þeir geti nýtt svæðið til framtíðar. Slíkt er gert með deiliskipulagi. Einnig eru nokkrum spurningum ósvarað s.s. vegna vatnsverndar, hvernig þetta samræmist starfsemi í nágrenninu og/eða á svæðinu og fl. Það er mögulegt að heimila þeim að vera þarna en með því að sleppa deiliskipulagi en þá er verða að taka áhættu td. hvort HES veiti starfsleyfi og ef nágrannar gera athugasemdir eða ef einhverjum dettur í hug að kæra málið til úrskurðanefndar. Skotfélagsmenn eru ekki tilbúnir að leggja út kostnað við framkvæmdir ef ekki sé tryggt að þeir hafi svæðið til lengri tíma.
Svæðið sem um ræðir er skipulagt undir iðnað og er skipulagsnefnd ekki tilbúin að gera breytingar á aðalskipulagi þannig að á svæðinu verði starfrækt skotsvæði.
7. Mánagerði 6: umsókn um byggingarleyfi
Erindi frá Jóhanni Guðfinnssyni. Í erindi er sótt um byggingarleyfi til þess að útbúa íbúið í bílskúr við Mánagerði 6.
Erindi frá Jóhanni Guðfinnssyni. Í erindinu er sótt um byggingarleyfi til þess að útbúa íbúð í bílskúr við Mánagerði 6. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að byggingaráformin verði samþykkt með fyrirvara um grenndarkynningu fyrir eigendum Mánagerði 4, Austurvegi 12 og 14. Skipulagsnefnd bendir á að ekki er heimilt að breyta bílskúr í séreign.