Skipulagsnefnd - 35. fundur
- 20.11.2017
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 17:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 35
- Ritari: Ármann Halldórsson
Nefndarmenn
- Sigurður Guðjón Gíslasonformaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Erla Ósk Wissler Pétursdóttiraðalmaður
- Ólafur Már Guðmundssonaðalmaður
- Pétur Már Benediktssonvaramaður
- Ármann Halldórssonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. Lóðaúthlutanir: Reglur
Nú er möguleiki á því að við förum að innkalla þær lóðir sem fóru út í Norðurhópinu sem ekki er búið að greiða fyrir, þá er mikilvægt að hafa lóðaúthlutunarreglur í gildi.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að reglurnar verði samþykktar.
2. Húsnæðisáætlanir: Undirbúningur og gerð
Á 477. fundi Bæjarstjórnar var Húsnæðisáætlun vísað til skipulagsnefndar, félagsmálanefndar og fræðslunefndar.
Skipulagsnefnd fagnar ítarlegri húsnæðisáætlun sem mun nýtast vel í skipulagsmálum í Grindavík.
Lagt fram.3. Melhólsnáma: Vinnsluáætlun
Drög að forvalsgögnum lögð fram. Verði þau samþykkt þá fara þau til bæjarstjórnar og forval auglýst.
Sigurður Gíslason vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Skipulagsnefnd felur sviðsstjóra að lengja tímafrest um mánuð og leggur til við bæjarsjórn að sviðstjóra verði falið að auglýsa forvalið í framhaldið.4. Verbraut 1 og 3: sameining lóða
Hópsnes ehf. kt. 470265-0199 sækir um leyfi til að sameina lóðirnar Verbraut 3 og Verbraut 1. Verbraut 1 er skilgreind á svæði fyrir samfélagsþjónustu skv. aðalskipulagi Grindavíkur 2020-2030 Svæðið er nánar skilgreint fyrir menningar- og listatengda starfsemi, byggðasafn skv. deiliskipulagi gamla bæjarins sem samþykkt var í b- deild stjórnartíðinda þann 30. maí 2016. Verbraut 3 er skilgreind á hafnarsvæði skv. aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2030 og deiliskipulagi hafnarsvæðis sem samþykkt var í b- deild stjórnartíðinda þann 22. október 2015.
Hópsnes ehf. kt. 470265-0199 sækir um leyfi til að sameina lóðirnar Verbraut 3 og Verbraut 1. Verbraut 1 er skilgreind á svæði fyrir samfélagsþjónustu skv. aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2030. Svæðið er nánar skilgreint fyrir t.d. menningar- og listatengda starfsemi og byggðasafn skv. deiliskipulagi gamla bæjarins sem samþykkt var í b-deild stjórnartíðinda þann 30. maí 2016. Verbraut 3 er skilgreind á hafnarsvæði skv. aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2030 og deiliskipulagi hafnarsvæðis sem samþykkt var í b-deild stjórnartíðinda þann 22. október 2015. Í 5.3.1. gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 segir um afmörkun deiliskipulags.
"Deiliskipulag skal að jafnaði ná til reits eða svæða sem mynda heildstæða einingu eins og svæði með sömu landnotkun, svæði afmarkað af götum, húsaþyrpingu, svo sem á landbúnaðarsvæðum, eða annað sem gefur sameiginlegar forsendur fyrir viðkomandi deiliskipulag. Í greinargerð deiliskipulags skulu færð rök fyrir afmörkun skipulagssvæðisins. Deiliskipulagssvæði mega ekki skarast"
Skipulagsnefnd hafnar erindinu.5. Verbraut 1: umsókn um niðurrif
Erindi frá Hópsnes ehf. kt. 470265-0199. í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir niðurrifi á mannvirki við Verbraut 1 mh 1 landnúmer 129131.
Erindi frá Hópsnes ehf. kt. 470265-0199. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir niðurrifi á mannvirki við Verbraut 1 matshluta 1 landnúmer 129131. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að byggingaráformin verði samþykkt með fyrirvara um starfsleyfi HES og skriflegu leyfi eigenda matshluta 2. Nefndin bendir á að á lóðinni eru skráðar fornminjar.
6. Hópsheiði 2: fyrirspurn um minkun byggingareitar
Páll Jóhann Pálson óskar eftir heimild til að minka byggingarreit við Hópsheiði 2. í 2-300 fermetra.
Páll Jóhann Pálson óskar eftir heimild til að minnka byggingarreit við Hópsheiði 2. Skipulagsnefnd leggur til að nýtingarhlutfall á lóðinni fari ekki undir 0,15.
7. SIgla: fyrirspurn um byggingaráform
Fyrirspurn frá Sólnýju I. Pálsdóttir. í erindinu er óskað eftir umsögn nefndarinnar á fyrirhuguðum framkvæmdum á 250 m2 láreistu mannvirki við Siglu landnúmer 199254. Erindinu fylgir riss.
Fyrirspurn frá Sólnýju I. Pálsdóttir. Í erindinu er óskað eftir umsögn nefndarinnar á fyrirhuguðum framkvæmdum á 250 m2 láreistu mannvirki við Siglu landnúmer 199254. Erindinu fylgir riss. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd.
8. Umsókn um stöðuleyfi: Veitingavagn.
Tralli ehf. kt.700703-2660 óskar eftir stöðuleyfi fyrir matarvagn við bílaplanið vestan við Víkurbraut 58.
Tralli ehf. kt. 700703-2660 óskar eftir stöðuleyfi fyrir matarvagn við bílaplanið vestan við Víkurbraut 58. Skipulagsnefnd samþykkir veitingu stöðuleyfis með fyrirvara um skriflegt samþykki lóðarhafa Víkurbrautar 58. Nánari staðsetning skal vera í samráði við sviðstjóra.
9. Heiðarhraun 11: umsókn um byggingarleyfi
Larry S.Sicat sækir um byggingarleyfi fyrir þegar byggðu mannvirki. Um er að ræða 12m2 viðbyggingu fyrir aftan bílskúr sjá teikningu frá VSS. Dags. mars.2008
Larry S.Sicat sækir um byggingarleyfi fyrir þegar byggðu mannvirki. Um er að ræða 12m2 viðbyggingu fyrir aftan bílskúr sjá teikningu frá VSS. dags. mars. 2008. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að byggingaráformin verði samþykkt.
10. Mánagata 5: umsókn um byggingarleyfi.
Breytingar á fyrri umsókn um byggingarleyfi, sótt er einnig um smávæginlegar útlits breytingar á íbúðarhúsi og stækkun. Von á teikningum.
Breytingar á fyrri umsókn um byggingarleyfi, sótt er um smávæginlegar útlitsbreytingar á íbúðarhúsi og stækkun. Erindinu fylgja teikningar unnar af Tækniþjónustu SÁ. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að byggingaráformin verði samþykkt með fyrirvara um grenndarkynningu fyrir Túngötu 10 og Mánagötu 3 og 7. Byggingarleyfi er gefið út þegar fullnægjandi hönnunargögn berast.
11. Túngata 10: umsókn um byggingarleyfi
Anton Narvaés sækir um leyfi fyrir stækkun á bílskúr. von á teikningum.
Anton Narvaés sækir um leyfi fyrir stækkun á bílskúr. Erindinu fylgja teikningar unnar af Tækniþjónustu SÁ. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að byggingaráformin verði samþykkt með fyrirvara um grenndarkynningu fyrir Mánagötu 5 og 7. Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi hönnunargögn berast.
12. Hafnargata 20: umsókn um byggingarleyfi
Erindi frá Þorbirni hf. kt. 420369-0429. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir innanhúsbreytingum við Hafnargötu 20-22. í fyrri umsókn var óskað eftir leyfi fyrir gistiheimili. Hætt hefur verið við þær áætlanir og sótt er einunigs sótt um breytingar á íbúðarhúsnæði þ.e. ekki gistiheimili
Erindi frá Þorbirni hf. kt. 420369-0429. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir innanhúsbreytingum við Hafnargötu 20-22. Í fyrri umsókn var óskað eftir leyfi fyrir gistiheimili. Hætt hefur verið við þær áætlanir og sótt er einunigs sótt um innanhús breytingar þ.e. ekki gistiheimili. Skipulagsnefnd samþykkir breytingu á áður samþykktri umsókn.