Skipulagsnefnd - 10. fundur
- 19.10.2015
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 17:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 10
- Ritari: Ármann Halldórsson
Nefndarmenn
- Sigurður Guðjón Gíslasonformaður
- Þórir Sigfússonaðalmaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Ólafur Már Guðmundssonaðalmaður
- Björgvin Björgvinssonvaramaður
- Ármann Halldórssonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. Hafnargata 6: umsókn um byggingarleyfi
Erindi frá Jóhannesi G. Sveinssyni. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir breyttu útliti á Hafnargötu 6. Breytingin felur í sér að glugga og hurð er breytt í innkeyrsluhurð.
Skipulagsnefnd samþykkir breytingarnar fyrir sitt leyti en bendir á að skriflegt samþykki allra eigenda sameignarinnar þarf að liggja fyrir sbr. lög um fjöleignahús nr. 26/1994. Byggingarleyfi verður gefið út af byggingarfulltrúa þegar tilskyldum gögnum hefur verið skilað inn.2. Brimketill: deiliskipulag
Tekið fyrir deiliskipulag Brimketils.$line$Grindavíkurbær og Reykjanes Geopark hafa ákveðið að gera deiliskipulag fyrir Brimketil og aðliggjandi útivistarsvæði. Brimketill er vinsæll áfangastaður á sunnanverðu Reykjanesi við sjávarsíðuna við Mölvík vestan Staðarbergs og myndaðist í stöðugum öldugangi þegar brimið lemur bergið. Deiliskipulagssvæðið er samtals um 8,2 ha að stærð. 1.Skipulagssvæðið$line$Grindavíkurbær og Reykjanes Geopark hafa ákveðið að gera deiliskipulag fyrir Brimketil og aðliggjandi útivistarsvæði. Brimketill er vinsæll áfangastaður á sunnanverðu $line$Reykjanesi við sjávarsíðuna við Mölvík vestan Staðarbergs og myndaðist í stöðugum öldugangi þegar brimið lemur bergið. Deiliskipulagssvæðið er samtals um 8,2 ha að stærð. $line$$line$Tilgangur verkefnisins er að vinna skipulag fyrir hverfisverndarsvæði Brimketils þar sem lögð er áhersla á bætt og öruggara aðgengi og aukið verði gildi svæðisins til útivistar. $line$Í leiðinni er verið að stýra umferð og vernda svæðið með auknum ágangi. Megin markmið með deiliskipulagsáætlun er að skilgreina aðkomu að svæðinu, skilgreina áningastaði og $line$bílastæði og bæta aðstöðu til útivistar á svæðinu í heild. Áninga- og útsýnisstaðir sem og stígagerð verði aðlagað landi eins og kostur er til að minnka sjónræn áhrif.$line$$line$Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að forkynna tillöguna skv. 40 gr. skipulagslags nr. 123/2010 og leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt til auglýsingar skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010
Tekið fyrir deiliskipulag Brimketils. Tilgangur verkefnisins er að vinna skipulag fyrir hverfisverndarsvæði Brimketils þar sem lögð er áhersla á bætt og öruggara aðgengi og aukið verði gildi svæðisins til útivistar. Í leiðinni er verið að stýra umferð og vernda svæðið með auknum ágangi. Megin markmið með deiliskipulagsáætluninni er að skilgreina aðkomu að svæðinu, skilgreina áningastaði og bílastæði og bæta aðstöðu til útivistar á svæðinu í heild. Áninga- og útsýnisstaðir sem og stígagerð verði aðlagað landi eins og kostur er til að minnka sjónræn áhrif. Svæðið er skilgreint sem hverfisverndarsvæði HV2 í aðalskipulagi Grindavíkurbæjar 2010-2030.
skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að forkynna deiliskipulagstillöguna og leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt til auglýsingar skv. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.3. Deiliskipulag norðan Hópsbrautar vesturhluti: Ósk um breytingu.
hér þarf að ákveða fyrir hverjum þið viljið grenndarkynna
Tekið fyrir tillaga að breytingu á deiliskipulagi norðan Hópsbrautar. Tillaga að breytingum er eftirfarandi lóðir við Norðurhóp 1-3-5 og 7-9-11 verða 1-3A-3B-5 og 7-9A-9B og 11 og verða fjórbýli í stað þríbýlis. Byggingarreitir stækka um 2,5 m til vesturs.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt og grenndarkynnt fyrir eigendum Norðurhóps 13, 15 og 17 sbr. 2. mgr. 43. gr. Skipulaga nr. 123/20104. Eldvörp:Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir rannsóknaboranir
Erindi frá HS orku kt. 680475-0169. Í erindinu er óskað eftir framkvæmdaleyfi fyrir tilraunaborunum í Eldvörpum. Erindinu fylgir greinargerð með skemamynd af borplönum og verklagsreglum.
Tilgangur rannsóknarborananna er m.a. að:
- Auka við þekkingu á umfangi, eðli og innri gerð jarðhitasvæðisins
- Meta tengsl við næstliggjandi jarðhitakerfi í Svartsengi
- Skera úr um hæfi svæðisins til virkjunar
Rannsóknarholurnar í Eldvörpum verða þeirrar gerðar að þær geti nýst síðar sem vinnsluholur ef til virkjunar kemur. Mannvirkjagerð felst í uppbyggingu borplana, lagningu tengivega frá vegslóðum að borplönum og styrkingu tiltekinna vegslóða sem liggja um svæðið.
Skipulagsnefnd leggur ríka áherslu að farið verði eftir leiðbeiningum um frágang borteiga unnið af VSÓ dagsett í júlí 2015 og sett verði skilyrði í framkvæmdaleyfið um að lögun hvers borteigs fái samþykki eftirlitsaðila Grindavíkur áður en framkvæmt er. Einnig að lögð verði fram vöktunaráætlun um hvernig endurgræðslu á mosa verði háttað.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að framkvæmdaleyfi verði veitt með ofangreindum skilyrðum.5. Hópsnes: Úrgangur á lóð Grindavíkurbæjar
Tekið fyrir erindi frá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja. Í erindinu er gert grein fyrir eftirlitsferð sem farin var þann 15. september sl. á svæði merkt nr. 3 í deiliskipulagi iðnaðarsvæðis sunnan Eyjabakka þar sem Hópsnes ehf kt.470265-0199 er með starfsemi á. Í erindinu er bent á brot á 9. gr. laga nr. 55/2003. Erindinu fylgja myndir. Skipulagsnefnd felur sviðstjóra að krefjast þess að Hópsnes fjarlægi allt sorp og lausamuni á svæðinu í samræmi við kröfu heilbrigðiseftirlits og skili svæðinu í sama ástandi og var áður en starfsemi fyrirtækisins hófst á svæðinu.
6. Kvikmyndataka við Bakka:Umsókn um framkvæmdaleyfi
Erindi frá Annasamir ehf. kt. 600407-2440. í erindinu er óskað eftir lokun á Verbraut fyrir framan Bakka í 2 daga á tímabilinu 17.-26. nóvember nk. Í erindinu kemur fram að svæðinu verði skilað í upprunalegu ástandi og samráð við fyrirtæki á svæðinu hafi átt sér stað. Skipulagsnefnd gerir kröfu um að umsagnaraðili leggi fram kort með hjáleiðum, nákvæmar tímasetningar og jákvæð umsögn lögreglu a.m.k 2 dögum fyrir ætlaða lokun. Einnig að vegmerkingar verði settar upp í samræmi við leiðbeiningar Vegagerðarinnar. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að framkvæmdaleyfið verði samþykkt með ofangreindum skilyrðum.
7. Hópsnesvegur 1: Umsókn um lóð
Erindi frá HH smíði kt.430800-2480. Í erindinu er óskað eftir lóð við Hópsnesveg 1. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt.
8. Staðarsund 1: umsókn um lóð
Erindi frá HH smíði kt.430800-2480. Í erindinu er óskað eftir lóð við Staðarsund 1. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt.