Skipulagsnefnd - 24. fundur
- 19.12.2016
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 17:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 24
- Ritari: Ármann Halldórsson
Nefndarmenn
- Sigurður Guðjón Gíslasonformaður
- Þórir Sigfússonaðalmaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Ólafur Már Guðmundssonaðalmaður
- Anton Kristinn Guðmundssonvaramaður
- Sigmar Björgvin Árnasonbyggingarfulltrúi
- Ármann Halldórssonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. Viðhald: bílastæði og akbrautir innan lóða
Vísað til nefndarinnar frá bæjarráði. Lagt fram minnisblað frá byggingarfulltrúa um viðhald gatna og göngustíga innan lóðamarka íbúa við Gerðavelli, Efstahraun, Staðarhraun, Heiðarhraun, Litluvöllum, Hólavöllum, Höskuldarvöllum
Málinu frestað.
2. Metanólverksmiðja í Svartsengi: Frummatsskýrsla
Erindi frá skipulagsstofnun. Í erindinu er óskað eftir umsögn Grindavíkurbæjar á frummatsskýrslu vegna mats á umhverfisáhrifum fyrir CRI í Svartsengi. Óskað er eftir því að Grindavíkurbær geri grein fyrir því hvort talið sé að gert sé nægjanlega vel grein fyrir fyrirhugaðri framkvæmd umhverfi og umhverfisáhrifum, mati framkvæmdaaðila á þeim, mótvægisaðgerðum og vöktun. Einnig er óskað eftir upplýsingum hvaða leyfum framkvæmdin er háð skv. 24. gr. reglugerðar nr. 660/2015 um mat á umhverfisáhrifum.
Erindi frá skipulagsstofnun. Í erindinu er óskað eftir umsögn Grindavíkurbæjar á frummatsskýrslu vegna mats á umhverfisáhrifum fyrir CRI í Svartsengi. Óskað er eftir því að Grindavíkurbær geri grein fyrir því hvort talið sé að gert sé nægjanlega vel grein fyrir fyrirhugaðri framkvæmd umhverfi og umhverfisáhrifum, mati framkvæmdaaðila á þeim, mótvægisaðgerðum og vöktun. Einnig er óskað eftir upplýsingum hvaða leyfum framkvæmdin er háð skv. 24. gr. reglugerðar nr. 660/2015 um mat á umhverfisáhrifum. Skipulagsnefnd leggur áherslu á að vöktunaráætlanir og mótvægisaðgerðir séu virtar og framkvæmdar. Sveitarfélagið hefur nú þegar veitt byggingarleyfi og framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmdinni eins og þeim er lýst í skýrslunni. Allar frekari stækkanir á verksmiðjunni eru háðar byggingarleyfi sbr. lög um mannvirki nr. 160/2010. Málinu vísað til umhverfis- og ferðamálanefndar.
3. Umferðaröryggi: ósk um hraðatakmarkandi aðgerðir á Gerðavöllum
Tekið fyrir athugasemdir íbúa við framkvæmdinni. als bárust fjórar athugasemdir.
Tekið fyrir athugasemdir íbúa við framkvæmdinni. Alls bárust fjórar athugasemdir. Skipulagsnefnd felur sviðsstjóra að láta vinna hraðahindranir í samræmi við fyrri hugmyndir. Samþykkt með fjórum atkvæðum gegn einu atkvæði fulltrúa B-lista.
4. Eldvörp:Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir rannsóknaboranir
HS orka hf. óskar eftir framlengingu á framkvæmdaleyfi fyrir tilraunaborunum í Eldvörpum.
HS orka hf. óskar eftir framlengingu á framkvæmdaleyfi fyrir tilraunaborunum í Eldvörpum.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt en minnir á að fyrri skilyrði framkvæmdaleyfis gilda áfram.5. Staðarsund 1: ósk um innkeyrslu
Erindi frá Lagnaþjónustu Suðurnesja kt. 630402-3280 og H.H. smíði kt. 430800-2480. Í erindinu er óskað eftir því að bæta við innkeyrslu við Staðarsund 1.
Erindi frá Lagnaþjónustu Suðurnesja kt. 630402-3280 og H.H. smíði kt. 430800-2480. Í erindinu er óskað eftir því að bæta við innkeyrslu við Staðarsund 1. Skipulagsnefnd hafnar erindinu.
6. Víkurbraut 34: ósk um breytingu á aðalskipulagi
Hermann Ólafsson f/h Þórkötlu ehf. sækir um að breytt verði skilgreiningu lóðar við Víkurbraut 34 á aðalskipulagi úr svæði fyrir þjónustustofnanir í verslun-og þjónustulóð
Erindi frá Hermanni Ólafssyni. Í erindinu er óskað eftir breytingu á skilgreiningu lóðar við Víkurbraut 34 í aðalskipulagi. Núna er lóðin skilgreind sem svæði fyrir þjónustustofnanir. Óskað er eftir því að lóðin verði skilgreind sem lóð undir verslun og þjónustu. Sviðsstjóra falið að láta vinna breytingu á aðalskipulagi á kostnað umsækjanda sé þess óskað. Að öðrum kosti verður breytingin útfærð í endurskoðun aðalskipulags Grindavíkur 2010-2030.
7. Umsókn um framkvæmdaleyfi: Borholur SV-25 og 26
$line$Erindi frá HS Orku. Í erindinu er óskað eftir framkvæmdaleyfi fyrir lagningu safnæða í Svartsengi frá borholum SV-25 og 26 í orkuverið.$line$
Erindi frá HS Orku. Í erindinu er óskað eftir framkvæmdaleyfi fyrir lagningu safnæða í Svartsengi frá borholum SV-25 og 26. Erindinu fylgir greinargerð dagsett 16. desember 2016 unnin af VSÓ verkfræðistofu. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að framkvæmdaleyfið verði veitt skv. reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 og að ítrekað verði í leyfinu að óheimilt er vinna, geyma efni, eða raska óröskuðu landi vegna framkvæmdarinnar.