Skipulagsnefnd - 41. fundur
- 14.05.2018
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 17:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 41
- Ritari: Ármann Halldórsson
Nefndarmenn
- Sigurður Guðjón Gíslasonformaður
- Þórir Sigfússonaðalmaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Erla Ósk Wissler Pétursdóttiraðalmaður
- Ólafur Már Guðmundssonaðalmaður
- Ármann Halldórssonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1.
Lagt fram.
2. Borgarhaun 2: breyting á aðalskipulagi
Erindi frá eigendum Borgarhrauns 2. Í erindinu er óskað eftir breytingu á aðalskipulagi þannig að hægt sé að reka gistiheimili við Borgarhraun 2. Í gildandi aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2030 er svæðið skilgreint sem íbúðabyggð. Skv. 3. gr. laga nr. 85/2007 með síðari breytingum og reglugerð sama efnis nr. 1277/2016 er einungis leyfilegt að selja gistingu í 90 daga á ári eða innan ákveðna tekjumarka.$line$Í ljósi þess getur skipulags- eða byggingarfulltrúi ekki veitt jákvæða umsögn til sýslumanns. Umsækjendur hafa heimild yfir þetta tímabil til gistingar.$line$Von er á að vinnu endurskoðun aðalskipulags ljúki næsta haust/ vetur.$line$
Erindi frá eigendum Borgarhrauns 2. Í erindinu er óskað eftir breytingu á aðalskipulagi þannig að hægt sé að reka gistiheimili við Borgarhraun 2. Í gildandi aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2030 er svæðið skilgreint sem íbúðabyggð.
Í ljósi þess að rekið hefur verið gistiheimili við Borgarhraun 2 í fjölda ára leggur skipulagsnefnd til við bæjarstjórn að unnin verði óveruleg breyting á aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2030 þannig að ríkjandi landnotkunarflokkur verði verslun - og þjónusta.3. Grindavíkurvegur: framkvæmdir 2018/2019
Hönnun er ekki hafin. Drög að hönnunarforsendum liggja fyrir. Undirbúa þarf beiðni um umsögn um mat á umhverfisáhrifum þ.e. svara þarf með rökum hvort við teljum að framkvæmdin þurfi umhverfismat. Hér er spurning um að undirbúa það með þvi að auglýsa/kynna fyrirhugaðar framkvæmdir fyrir almenningi og hagsmunaðailum áður en ferlið byrjar, slíkt gæti skyrkt stöðu okkar þegar kemur að ákvörðun um matsskyldu
Lagt fram.
4. Umsókn um byggingarleyfi og lóð: Stamphólsvegur 4
Erindi frá VKlist kt. 470218-0530. Í erindinu er óskað eftir nýrri lóð við Stamhólsveg 4. Einnig er óskað eftir byggingarleyfi byggingarleyfi fyrir húsi í pakkhúsastíl fyrir léttan iðnaðar/liststarfsemi ogÞjónustu. Húsið er timburhús á staðsteyptum sökkli með steyptri$line$Botnplötu. Útveggir eru timburveggir, klæddir að utan með standandi viðarklæðningu á loftunargrind. Þakið er sperruþak klætt með 25x150 mm borðaklæðningu á sperrur með þakpappa að hluta borið upp með límtrébitum. Þakið er klætt með timburklæðningu.$line$$line$Erindinu fylgja teikningar unnar af Sveini Valdimarssyni dagsettar 07.05.2018. Erindinu fylgir samþykki nágranna fyrir nýrri lóð.$line$
Erindi frá VKlist kt. 470218-0530. Í erindinu er óskað eftir nýrri lóð við Stamhólsveg 4. Einnig er óskað eftir byggingarleyfi byggingarleyfi fyrir húsi í pakkhúsastíl fyrir léttan iðnaðar/liststarfsemi ogÞjónustu. Húsið er timburhús á staðsteyptum sökkli með steyptri botnplötu.
Erindinu fylgja teikningar unnar af Sveini Valdimarssyni dagsettar 07.05.2018. Erindinu fylgir samþykki nágranna fyrir nýrri lóð.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að stofnuð verði nýjar lóðir við Stamphólsveg 4 og 6 og byggingaráformin verði samþykkt með fyrirvara um grenndarkynningu eigenda Stamphólsvegar 2 ásamt fullnaðarhönnunargögnum og jákvæðum umsögnum heilbrigðiseftirlits, vinnueftirlits og slökkviliðs.5. Umsókn um lóð: Hólmasund 1
Erindi frá 240 ehf. í erindinu er óskað eftir lóð við Hólmasund 1.
Erla Pétursdóttir vék af fundi við afgreiðslu málsins. Erindi frá 240 ehf. Í erindinu er óskað eftir lóð við Hólmasund 1 fyrir geymsluhúsnæði. Skv. deiliskipulagi fyrir svæðið sem staðfest var í b-deild stjórnartíðinda þann 7. ágúst 2012 og gildandi aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2030 er Hólmasund 1 ætlað fyrir hafsækna starfsemi. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að erindinu verði hafnað.
6. Umsókn um lóð: Hólmasund 1
Erla Pétursdóttir vék af fundi við afgreiðslu málsins. Erindi frá Collagen ehf. Í erindinu er óskað eftir lóð við Hólmasund 1 fyrir collagenframleiðslu úr fiskroði. Skv. deiliskipulagi fyrir svæðið sem staðfest var í b-deild stjórnartíðinda þann 7. ágúst 2012 og gildandi aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2030 er Hólmasund 1 ætlað fyrir hafsækna starfsemi. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt.
7. Umsókn um byggingarleyfi: Víkurbraut 60
Erindi frá Urtustein ehf. í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir viðbyggingu og breytingum á bílastæðum við Víkurbraut 60.
Erindi frá Urtustein ehf. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir viðbyggingu og breytingum á bílastæðum við Víkurbraut 60. Ljóst er að fyrirhugaðar breytingar munu hafa mikil áhrif á gangandi vegfarendur. Skipulagsnefnd frestar málinu og óskar eftir því að fá forsvarsmenn Urtusteins ehf. á næsta fund skipulagsnefndar.
8. Bluelagoon Challenge : umsókn
Erindi frá Hjólreiðafélagi Reykjavíkur, óskýrt erindi von á nári upplýsingum
Erindi frá Hjólreiðafélagi Reykjavíkur fyrir Bláa Lóns hjólreiðakeppni 2018. Vegna keppninnar þarf lokun Norðurljósavegar við Grindavík að Bláa Lóninu 9. júní 2018 frá kl 21-24. Einnig er óskað eftir aðstoð við lokun vega. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt með fyrirvara um leyfi lögreglu. Hægt er að nálgast lokunarskilti með hæfilegum fyrirvara í þjónustumiðstöð í samráði við forstöðumann þjónustumiðstöðvar.
9. Húsnæðisáætlanir: Undirbúningur og gerð
Lög fram til samþykktar. Verði hún samþykkt mun áætlunin vera birt opinberlega.
Lagt fram. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að skýrslan verði samþykkt og prófarkalesin fyrir birtingu.
10. Daggæsla : Húsnæðismál
Sviðsstjóri kynnir málið
Lagt fram.
11. Mannvirkjastofnun: Úttektir slökkviliða 2017, Grindavík
Skv. úttekt mannvirkjastofnunar stenst eldvarnareftirlit Grindavíkur ekki kröfur. Á mannvirkjum í rekstri skal framkvæma eldvarareftirlit með mismunandi tímamillibili sem er háð tegund og umfangi reksturs. Sum mannvirki í Grindavík skal fara fram eldvarnareftirlit á 6 mánaða fresti, árs og jafnvel sjaldnar. Sviðsstjóri hefur óskað eftir nánari gögnum og upplýsingum frá mannvirkjastofnun.
Lagt fram. Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.
12. Akur: umsókn um byggingarleyfi
Jón Guðmundur Ottósson kt:081071-3149 sækir um byggingarleyfi f/h Fasteignafélagið Steinar ehf. á breytingum innan og utanhúss skv. teikningum frá Tækniþjónustu SÁ ehf.
Jón Guðmundur Ottósson sækir um byggingarleyfi f/h Fasteignafélagsins Steinar ehf. á breytingum innan og utanhúss að Akri skv. teikningum frá Tækniþjónustu SÁ ehf. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt með fyrirvara um fullnægjandi hönnunargögn. Nefndin bendir á að á lóðinni eru fornminjar.