Skipulagsnefnd - 25. fundur
- 16.01.2017
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 17:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 25
- Ritari: Ármann Halldórsson
Nefndarmenn
- Sigurður Guðjón Gíslasonformaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Erla Ósk Wissler Pétursdóttiraðalmaður
- Örn Sigurðssonvaramaður
- Pétur Már Benediktssonvaramaður
- Ármann Halldórssonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1.
Fundargerð tekin fyrir.
2. Breyting á deiliskipulagi: Norðurhóp 13, 15 og 17
Tekin fyrir tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir Hópshverfi. Í tillögunni er gert ráð fyrir stækkun byggingarreits til suðurs við Norðurhóp 13,15 og 17. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að breytingin verði samþykkt til kynningar skv. 2 mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að tillagan verði grenndarkynnt fyrir eigendum Norðurhóps 7, 9a, 9b, 11, 15, 17 og 32.
3. Staðarvör 4: Ósk um lokaúttekt.
Erindi frá eigendum Staðarvarar 4. Erindinu fylgir greinargerð ásamt svörum Mannvirkjastofnunar vegna málsins. Í svörum Mannvirkjastofnunar kemur fram að stofnunin mun ekki aðhafast meira í málinu. Í greinargerð kemur fram að mannvirkið er skráð á byggingarstig 7, þrátt fyrir að lokaúttekt hafi ekki farið fram. Í erindinu er óskað eftir að sveitarfélagið uppfylli lagaskyldur sýnar með þvi að láta lokaúttekt fara fram. Skv. svörum frá byggingarfulltrúa var ekki skilað inn fullnægjandi teikningum vegna framkvæmdarinnar. Skipulagsnefnd bendir á að byggingarfulltrúi mun framkvæmda lokaúttekt þegar fullnægjandi teikningum hefur verið skilað inn til byggingarfulltrúa.
4. Tjaldsvæði: Smáhýsi
Við þurfum að skoða bílastæðamál, geri ráð fyrir að þeir verið að hafa sér bílastæði. Tillaga að bílastæðum er hjálögð
Skipulagsnefnd felur sviðsstjóra að útfæra tillögu b. Skipulagsnefnd áréttar að skráðar minjar eru á svæðinu og ber framkvæmdaraðilum að sýna aðgát við allar framkvæmdir á svæðinu. Skipulagsnefnd leggur til við byggingarfulltrúa að tilkynna málið inn til Minjastofnunar.
5. Stamphólsvegur 5: breyting á deiliskipulagi - minnkun byggingarreitar
Heimavellir hafa skilað inn staðfestingu á því að þeir óska eftir skipulaginu, greitt var fyrir gatnagerðargjöld skv. gamla kerfinu fyrir Stamphólsveg 3. þ.e. var bara greitt fyrir byggða fermetra ekki byggingarreit.
Tekin fyrir breyting á deiliskipulagi Stamphólsvegar. Breytingin tekur til minnkunar á byggingarreit og nýtingarhlutfalli úr 0,8 í 0,59. Breytingin hefur ekki áhrif á nágranna. Um er að ræða breytingu á deiliskipulagi sem umsækjandi hafið áður fengið samþykkt hjá Grindavíkurbæ. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að breytingin verði samþykkt skv. 3 mgr. 43 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
6. Kynningarmál: lausar lóðir
Það er farið að vanta lóðir sem eru formlega lausar. Við þurfum að finna lóðir úr samþykktum deiliskipulögum til að bæta við listann. Best er að velja lóðir sem þarf að fara í sem minsta gatnagerð. Við gerum tillögu, leggjum fyrir bæjarstjórn og förum svo í að útbúa lóðblöð, gatnagerð ofl. Það eru 20 mkr. á áætlun í gatnagerð nýrra gatna.
Lagt fram. Sviðsstjóra falið að vinna áfram tillögur að lóðum samkvæmt umræðum á fundinum.
7. Almannavarnarnefnd Grindavíkur - 56
Vek athygli á lið 3. í fundargerð.
Lagt fram.
8. Steinar: umsókn um byggingarleyfi
Jón Guðmundur Ottósson kt:081071:3149 sækir um byggingarleyfi f/h Fasteignafélagið Steinar ehf. fyrir smávægilegum breytingum innanhús og að eign verði breytt úr íbúðarhúsi í Gistiheimili. Geri ráð fyrir að teikningar komi á mánudagsmorgun.
Jón Guðmundur Ottósson kt:081071:3149 sækir um f/h fasteignafélagsins Steinar ehf. að eignin verði breytt úr íbúðarhúsi í gistiheimili. Skipulagsnefnd bendir á að áætlanirnar samræmast ekki deiliskipulagi. Erindinu hafnað.
9. Viðhald: bílastæði og akbrautir innan lóða
Sviðsstjóra falið að vinna minnisblað um málið.