Skipulagsnefnd - 29. fundur
- 23.05.2017
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 17:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 29
- Ritari: Ármann Halldórsson
Nefndarmenn
- Sigurður Guðjón Gíslasonformaður
- Þórir Sigfússonaðalmaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Erla Ósk Wissler Pétursdóttiraðalmaður
- Jón Emil Halldórssonvaramaður
- Ármann Halldórssonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. Umsókn um byggingarleyfi: Vesturbraut 10
Erindi frá Guðmundi Grétari Karlssyni. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir breytingum Vesturbraut 10.
Erindi frá Guðmundi Grétari Karlssyni. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir breytingum á Vesturbraut 10. Erindinu fylgja teikningar unnar af Tækniþjónustu Gunnars Indriðasonar dagsettar í mars 2017. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja byggingaráformin og að byggingarleyfi verði gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi hönnunargögn berast.
2. Laut: Fyrirspurn um raðhús
Erindi frá frá HÆ ehf. kt. 411214-0360. Í erindinu er óskað eftir að reisa tvö raðhús við Laut í Grindavík. Grenndarkynna þarf framkvæmdina verði hún samþykkt.
Erindi frá frá HÆ ehf. kt. 411214-0360. Í erindinu er óskað eftir að reisa tvö raðhús við Laut í Grindavík. Skipulagsnefnd hafnar erindinu og felur sviðsstjóra að hefja vinnu við deiliskipulag á svæðinu.
3. Hafnargata 4; breyting á skipulagi
Erindi frá Særúnu Lind Barnes. Í erindinu er óskað eftir breytingu á aðal- og deiliskipulagi til þess að hægt sé að reka gistiheimili við Hafnargötu 4. Svæðið er skilgreint í dag sem samfélagsþjónusta/björgunarsveitahús.
Erindi frá Særúnu Lind Barnes. Í erindinu er óskað eftir breytingu á aðal- og deiliskipulagi til þess að hægt sé að reka gistiheimili við Hafnargötu 4. Svæðið er skilgreint í dag sem samfélagsþjónusta/björgunarsveitahús. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að unnin verði óveruleg breyting á deiliskipulagi og hún grenndarkynnt fyrir eigendum Hafnargötu 2.
4. Breyting á deiliskipulagi: Norðurhóp 13, 15 og 17
Tekið fyrir minnisblað vegna athugasemda
Tekið fyrir eftir grenndarkynningu. Ein athugasemd barst frá Trésmiðju Heimis. Í athugasemdinni er framkvæmdinni mótmælt vegna sjónmengunnar og ósamræmis í raðhúsinu. Skipulagsnefnd telur að útsýni sé ekki skert með breytingunni. Nefndin telur að ekki sé lýti af mannvirkinu og bendir að lokum á að breytingin á við um allar íbúðir í lengjunni til að stuðla að samræmi.
5. Tjaldsvæði: Smáhýsi
240 ehf. óskar eftir að fá breytingu á staðsetningu bílastæða, með þessu fyrirkomulagi þá lostnar Grindavíkurbær undan því að gera bílastæðin.Erindinu fylgja 3 tillögur að skipulagi bílastæða.
Skipulagsnefnd hafnar erindinu og telur að bílastæði eins og þeim er lýst í samþykktum teikningum vera betri út frá umferðaröryggi og ásýnd.
6. Gunnuhver: deiliskipulag
Tekið fyrir tillaga að deiliskipulagi vegna Gunnuhvers. Tillagan er lögð fram á Uppdrætti með greinargerð unnin af Landmótun dagsett 18.5 2017.
Tekið fyrir tillaga að deiliskipulagi vegna Gunnuhvers. Tillagan er lögð fram á Uppdrætti með greinargerð unnin af Landmótun dagsett 18.5 2017. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og felur nefndin sviðsstjóra forkynna tillöguna skv. 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010
7. Hafnargata 22: fyrirspurn um byggingarleyfi.
Erindi frá Þorbirni hf. kt. 420369-0429. Erindið er fyrirspurn um byggingarleyfi. Hér þarf að fara í breytingu á deiliskipulagi sjá næsta mál
Málinu frestað.
8. Hafnargata 22: Breyting á deiliskipulagi.
Erindi frá Þorbirni hf. kt. 420369-0429. Í erindinu er óskað eftir stækkun lóðar og byggingareitar við Hafnargötu 22. Erindinu fylgir minnisblað frá Eflu verkfræðistofu.
Erindi frá Þorbirni hf. kt. 420369-0429. Í erindinu er óskað eftir stækkun lóðar og byggingarreitar við Hafnargötu 22. Erindinu fylgir minnisblað frá Eflu verkfræðistofu. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að unnin verði breyting á deiliskipulagi í samræmi við minnisblað Eflu verkfræðistofu.
9. Aðalskipulag Garðabæjar: Beiðni um umsögn.
Erindi frá Garðabæ. Í Erindinu er óskað eftir umsögn um tillögu að aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030.
Erindi frá Garðabæ. Í Erindinu er óskað eftir umsögn um tillögu að aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd.
10. Umsókn um framkvæmdaleyfi
Erindi frá Hjólreiðafélagi Reykjavíkur kt. 430194-2089. Í erindinu er óskað eftir lokunum á Norðurljósaveg 3 júní nk.
Erindi frá Hjólreiðafélagi Reykjavíkur kt. 430194-2089. Í erindinu er óskað eftir lokunum á Norðurljósaveg 3 júní nk. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja veitingu framkvæmdaleyfis. Nefndin leggur áherslu á að allt rusl og merkingar sem falla til vegna keppninnar verði fjarlægt.
11. Túngata 8: umsókn um byggingarleyfi
Stefanía Huld Gylfadóttir sækir um leyfi fyrir breytingum íbúðarhúsi ásamt frekari breytingum á bílgeymslu sjá teikningar frá Tækniþjónustu SÁ ehf. dags. 24.03.2017
Stefanía Huld Gylfadóttir sækir um leyfi fyrir breytingum íbúðarhúsi ásamt frekari breytingum á bílgeymslu sjá teikningar frá Tækniþjónustu SÁ ehf. dags. 24.03.2017. Skipulagsnefnd samþykkir erindið en bendir á að bílskúr verður ekki skráður með sér fastanúmer.
12. Norðurhóp 62-66: Bílakjallari
Erindi frá Rýma arkitektum kt. 7110003-2310. Í erindinu er óskað eftir breytingu á skilmálum fyrir Norðurhóp 62, 64 og 66 vegna bílakjallara
Erindi frá Rýma arkitektum kt. 7110003-2310. Í erindinu er óskað eftir breytingu á skilmálum fyrir Norðurhóp 62, 64 og 66 vegna bílakjallara. Skipulagsnefnd samþykktir að fallið verði frá kröfum um bílakjallara á lóðunum Norðurhóp 62, 64 og 66.
13. Umsókn um byggingarleyfi: Staðarsund 2-12
Erindi frá J.V. fiskverkun kt. 460116-0130. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir við byggingu við Staðarsund 2-12. Erindinu fylgir samþykki meðeigenda og teikningar unnar af tækniþjónustu S.Á.
Erindi frá J.V. fiskverkun kt. 460116-0130. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir við byggingu við Staðarsund 2-12. Erindinu fylgir samþykki meðeigenda og teikningar unnar af Tækniþjónustu S.Á. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja byggingaráformin með fyrirvara um skriflegt leyfi eigenda Staðarsunds 14 og 16a og 16b á grundvelli 3. mgr. skipulagslaga nr 123/2010 og að byggingarleyfi verði gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi hönnunargögn berast.
14. Hafnargata 8: Breyting á skipulagi
Tekin fyrir breyting á aðal- og deiliskipulagi Hafnarsvæðis Ránagata/Hafnargata vegna Hafnargötu 8. Til stendur að breyta Hafnargötu 8u í gistiheimili. Tillagan er lögð fram á tveimur greinargerðum með uppdráttum frá Eflu verkfræðistofu dagsettar 18.5.2017.
Tekin fyrir óveruleg breyting á aðal- og deiliskipulagi Hafnarsvæðis Ránagata/Hafnargata vegna Hafnargötu 8. Til stendur að breyta Hafnargötu 8 í gistiheimili. Tillagan er lögð fram á tveimur greinargerðum með uppdráttum frá Eflu verkfræðistofu dagsettar 18.5.2017. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að breytingin verði samþykkt skv 43. og 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
15.
Lagt fram.
16.
Lagt fram.