Skipulagsnefnd - 69. fundur
- 17.02.2020
- Fundargerð
- Kl. 16:15 - 18:05
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 69
- Ritari: Atli Geir Júlíusson
Nefndarmenn
- Guðmundur L. Pálssonformaður
- Ólafur Már Guðmundssonaðalmaður
- Anton Kristinn Guðmundssonaðalmaður
- Lilja Ósk Sigmarsdóttiraðalmaður
- Gunnar Már Gunnarssonaðalmaður
Starfsmenn
- Atli Geir Júlíusson
1. Skipulagsnefnd: Samþykkt 2020
Lögð er fram tillaga að samþykkt fyrir skipulagsnefnd Grindavíkurbæjar.
Lögð er fram tillaga að samþykkt fyrir skipulagsnefnd Grindavíkurbæjar.
Skipulagsnefnd samþykkir samþykktina og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.2. Deiliskipulag - Norðan Hópsbrautar
Farið yfir vinnu við nýtt deiliskipulag norðan Hópsbrautar. Fyrstu drög að greinagerð lögð fram. Uppfærð gögn fara inn á málið á mánudagsmorgun.
Farið yfir vinnu við nýtt deiliskipulag norðan Hópsbrautar. Fyrstu drög að greinagerð lögð fram.
Skipulagsnefnd felur sviðsstjóra að koma á fundi með byggingarverktökum á svæðinu í byrjun mars.3. Deiliskipulagsbreyting í Svartsengi
Deiliskipulagsbreyting í Svartsengi
Skipulagsnefnd felur sviðsstjóra að framlengja auglýsingartíma á tillögu að breyttu deiliskipulagi í Svartsengi.
4. Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025
Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 og nýju deiliskipulagi fyrir Leiðarenda, helli í upplandi Hafnarfjarðar. Málið hefur áður komið til skipulagsnefndarinnar þann þegar mörkum Hafnarfjarðar var breytt í samræmi við úrkurð óbyggðarnefndar.
Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 og nýju deiliskipulagi fyrir Leiðarenda, helli í upplandi Hafnarfjarðar. Málið hefur áður komið til skipulagsnefndarinnar þann þegar mörkum Hafnarfjarðar var breytt í samræmi við úrskurð óbyggðarnefndar.
Sviðstjóra falið að vinna málið áfram.Linkur á heimasíðu Hafnarfjarðarbæjar https://www.hafnarfjordur.is/ibuar/skipulag/skipulag-i-kynningu/leidarendi-hellir-i-upplandi-hafnarfjardar
5. Aðalskipulag Ölfuss - Heildarendurskoðun
Sveitarfélagið Ölfus sendir til umsagnar á skipulags- og matslýsingu vegna endurskoðunar aðalskipulags Ölfuss 2010-2022.
Skipulags- og matslýsing vegna endurskoðunar aðalskipulags Ölfuss 2010 - 2022 lögð fram til kynningar.
6. Fráveita Grindavíkurbæjar - hönnun og staðarval
Lagt fram til kynningar. Vinna við staðarval og frumhönnun á útrás og hreinsistöð fráveitukerfis Grindavíkurbæjar er í fullum gangi.
Lagt fram til kynningar. Vinna við staðarval og frumhönnun á útrás og hreinsistöð fráveitukerfis Grindavíkurbæjar er í fullum gangi.
7. Stígur frá Grindavík vestur að gólfvelli
Lagðar eru fram hugmyndir um legu á göngu- og hjólastíg frá Grindavík vestur að gólfvelli.
Lagðar eru fram til kynningar hugmyndir um legu á göngu- og hjólastíg frá Grindavík vestur að golfvelli.
8. Þórkötlustaðir - fyrirspurn um stækkun
Grenndarkynningu vegna byggingaráforma við Þórkötlustaði í Þókötlustaðahverfi er lokið án athugasemda.
Fyrirspurn um stækkun á Þórkötlustöðum (Vesturbær).Engin athugasemd barst við grenndarkynningu vegna fyrirspurnar. Málsaðila er bent á að sækja þarf um byggingarleyfi fyrir framkvæmdunum.
9. Fyrirspurn vegna stækkunar á núverandi hringvelli
Fyrirspurn frá hestamannafélaginu Brimfaxa um stækkun á reiðvelli félagsins.
Tillaga Brimfaxa að stækkun reiðvallarins fer inn á fyrirhugaðan tengiveg við Suðurstrandarveg lögð fram. Finna þarf aðra staðsetningu fyrir löglegan reiðvöll. Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.
10. Svæði til skógæktar í Grindavík
Hugmyndir um áherslur í skógrækt settar fram til umræðu. Áhersla hefur verið á svæði norður af Hópshverfi (Hópsheiði) þar sem nú er verið að skoða færslu Suðurstrandarvegar. Huga þarf að samningi við skógræktarfélag Grindavíkur um ákveðin svæði eins og gert var fyrir Hópsheiði (forsenda þess að fá plöntur frá skógræktarfélagi Íslands).
Rætt um hvaða svæði væru ákjósanlegust til skógræktar við Grindavík.
Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram með Skógræktarfélagi Grindavíkur.