Skipulagsnefnd - 14. fundur
- 15.02.2016
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 17:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 14
- Ritari: Ármann Halldórsson
Nefndarmenn
- Sigurður Guðjón Gíslasonformaður
- Þórir Sigfússonaðalmaður
- Ólafur Már Guðmundssonaðalmaður
- Páll Þorbjörnssonvaramaður
- Ármann Halldórssonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
- Björgvin Björgvinssonvaraformaður
1. Orkustofnun: Beiðni um umsögn
Lögð fram umsókn frá Iceland Resources ehf., til Orkustofnunar um rannskóknarleyfi á nokkrum svæðum á íslandi, þ.a.m svæði EL 01 á Reykjanesi til leitar að gulli. Umrætt svæði er innan Grindavíkur
Lögð fram umsókn frá Iceland Resources ehf., til Orkustofnunar um rannsóknarleyfi á nokkrum svæðum á Íslandi, þ.a.m svæði EL 01 á Reykjanesi til leitar að gulli. Umrætt svæði er innan Grindavíkur.
Skipulagsnefnd telur ekki líklegt að bætt verði inn nýjum námum í aðalskipulagi Grindavíkur. Skipulagsnefnd leggur áherslu á að sækja beri um framkvæmdaleyfi fyrir öllum framkvæmdaleyfisskyldum framkvæmdum tengdum verkinu sbr. reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012. Innan svæðisins EL 01 er mikið af viðkvæmum svæðum m.a. svæði á náttúruminjaskrá, vatnsverndarsvæði, nútímahraun ofl. Skipulagsnefnd ítrekar að utanvegaakstur er með öllu óheimill. Skipulagsnefnd leggur til við Orkustofnun að erindi Iceland Resources ehf. verði sent Reykjanes Geopark til umsagnar á öllum stigum málsins. Málinu vísað til umhverfisnefndar.2. Brunavarnaráætlun: 2014-2017
Athugasemdir/ábendingar
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að áætlunin verði samþykkt með áorðnum breytingum.
3. Seljabót 3: Fyrirspurn um breytingu á skipulagi.
Erindi frá Vélsmiðju Grindavíkur kt. 59069-1739. Í erindinu er óskað etir breytingu á deiliskipulagi hafnarsvæðis Ránargata/Hafnargata. Breytingin felur í sér að byggingarreitur við Seljabót 3 verði stækkaður til norðurs að lóðamörkum Hafnargötu 24.
Erindi frá Vélsmiðju Grindavíkur kt. 59069-1739. Í erindinu er óskað etir breytingu á deiliskipulagi hafnarsvæðis Ránargata/Hafnargata. Breytingin felur í sér að byggingarreitur við Seljabót 3 verði stækkaður til norðurs að lóðamörkum Hafnargötu 24.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkt verði að láta vinna breytingu á deiliskipulagi á kostnað umsækjanda sbr. 2 mgr. 38 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsnefnd telur að grenndarkynna þurfi breytinguna fyrir eigendum Seljabótar 1 og gera þarf grein fyrir bílastæðum sem henta starfseminni í tillögu að breytingu á skipulagi.4. Fiskeldi á stað: umsókn um graftrarleyfi
Heimildin er til staðar, ákvörðunin er ykkar, sjá neðst á bls. 23 hér http://www.mannvirkjastofnun.is/library/Skrar/Byggingarsvid/Byggingarreglugerd/Bygg.reglugerð_skjá.pdf
Erindi frá Íslandsbleikju ehf. 610406-1060. Í erindinu er óskað eftir framkvæmdaleyfi fyrir könnun á jarðveg á röskuðu svæði vestan megin við núverandi ker. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að framkvæmdaleyfi verði veitt.
5. Samband íslenskra sveitarfélag: Vinna við samræmda lóðaafmörkun vegna orkufyrirtækja
Lagt fram.
Skipulagsnefnd vísar málinu til bæjarráðs.
6. Umferðaröryggi: Ábendingar
Lagt fram
Erindi frá Bjarný Sigmarsdóttir. Erindinu fylgja ábendingar um umferðaröryggismál í Grindavík. Skipulagsnefnd þakkar ábendingarnar og vísar þeim í endurskoðun aðalskipulags og til umferðaröryggisnefndar. Skipulagsnefnd felur sviðssjóra að herja á Vegagerðina með viðgerðir á Grindavíkurvegi.
7. Keflavíkurflugvöllur: Tillaga að aðalskipulagi
Lagt fram.
Lagt fram.
8. Brunavarnir suðurnesja: samstarfssamningur
Tekin fyrir samningur um gagnkvæma aðstoð milli Brunavarna Suðurnesja bs, og Slökkvilið Grindavíkur.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að samningurinn verði samþykktur.
9. Endurnýjun götumyndar: Arnar-, Borgar og Staðarhraun.
Tekin fyrir drög að hönnun götumyndar í Arnar-, Borgar og Staðarhraun. Áætlað er að framkvæmt verði hluti verksins í sumar. Hönnun tekur mið að því að halda sama svipmóti og við endurnýjun gatnalýsingar í Heiðarhrauni og Hvassahrauni. Gatnamót við Staðarhraun/Hraunbraut og Borgarhraun/Hraunbraut þrengjast lítillega m.v. eins og þau eru í dag.
Lagt fram. Sviðsstjóra falið að vinna tillögur nefndarinnar áfram.
10. Breyting á deiliskipulagi norðan Hópsbrautar: Umsókn 2.
Erindi frá Trésmiðju Heimis kt. 570102-3460. Í erindinu er óskað efir breytingu á deiliskipulagi norðan Hópsbrautar. Óskað eftir því að lóðirnar Norðurhóp 1,3,5 og 7,9,11 verði gerðar að raðhúsalóðum með fjórum íbúðum í stað þriggja.
Erindi frá Trésmiðju Heimis kt. 570102-3460. Í erindinu er óskað efir breytingu á deiliskipulagi norðan Hópsbrautar. Óskað eftir því að lóðirnar Norðurhóp 1,3,5 og 7,9,11 verði gerðar að raðhúsalóðum með fjórum íbúðum í stað þriggja. Skipulagsnefnd samþykkir að hafin verði vinna við breytingu á skipulagi á kostnað framkvæmdaraðila. sbr. 2 mgr. 38 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
11. Breyting á deiliskipulagi: Reykjanesvirkjun.
Málinu frestað.