Skipulagsnefnd - 13. fundur
- 18.01.2016
- Fundargerð
- Kl. 19:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 13
- Ritari: Ármann Halldórsson
Nefndarmenn
- Þórir Sigfússonaðalmaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Erla Ósk Wissler Pétursdóttiraðalmaður
- Ólafur Már Guðmundssonaðalmaður
- Jón Emil Halldórssonvaramaður
- Ármann Halldórssonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. Breyting á aðalskipulagi: fiskeldi á Stað
Tekin fyrir breyting á aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2030 ásamt umhverfisskýrslu. Breytingin felur í sér að iðnaðarsvæði i7 stækkar um 17,7 ha. og fer yfir svæði nr. 105 á náttúruminjaskrá. Ekki hafa borist athugasemdir frá Náttúrufræðistofnun og Umhverfisstofnun vegna skipulagslýsingar.
Berist ekki athugasemdir sem leiða til breytinga á tillögunni felur skipulagsnefnd sviðsstjóra að kynna breytinguna ásamt umhverfisskýrslu skv. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og leggur til við bæjarstjórn að sviðsstjóra verði falið að senda Skipulagsstofnun breytinguna skv. 3. mgr. 30 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og auglýsa hana skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, geri Skipulagsstofnun ekki athugasemdir.2. Deiliskipulag Víðihlíð og nágrenni
Tekin fyrir tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir Víðihlíð og nágrenni. Deiliskipulagssvæðið hefur verið stækkað og afmarkast nú af Austurvegi til suðurs, Hópsbraut til austurs og opnu svæði og vesturmörkum lóðar dvalarheimilis aldraðra, Víðihlíðar, til vesturs. Gert er ráð fyrir mismunandi stærðum íbúða, bæði í fjölbýlis- og sérbýlishúsum. Í fjölbýlishúsum er reiknað með u.þ.b. 60-100 m2 stórum íbúðum og geta þær verið með eða án bílgeymslu. Sérbýli geta verið annað hvort stakstæð eða tengd sem par- eða raðhús. Þar er heimilt að breyta bílageymslum milli húsa í íbúð, ef minni eftirspurn verður eftir bílageymslum. Einnig er gert ráð fyrir nýbyggingum við núverandi
dvalarheimili aldraðra, Víðihlíð. Þannig ætti að vera unnt að uppfylla þarfir og kröfur
sem flestra tilvonandi íbúa.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt og auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/20103. Deiliskipulag: fiskeldi á Stað
Deiliskipulagstillaga ásamt umhverfisskýrslu fiskeldis á Stað unnin af AVH arkitektum dagsett í október 2015 tekin fyrir. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að skipulagið verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samhliða aðalskipulagsbreytingu.
4. Deiliskipulag Stamhólsvegar: Breyting
Tekin fyrir eftir auglýsingu breyting á deiliskipulagi Stamphólsvegar í Grindavík. Breytingin felur í sér að Stamphólsvegur 3 verði skipt upp í tvær lóðir og að reist verði 4 hæða fjölbýlishús. Lóð við Stamphólsveg 3 verður 3.493 m2. Á nýrri lóð Stamphólsveg 5 verður leyfilegt að reisa 4. hæða fjölbýlishús með hámarkshæð 12 m. Skipulaginu fylgir skýringaruppdráttur. Tillagan var auglýst frá og með 4. desember 2015 til og með 18. janúar 2016. Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs skipulagið til fullnaðarafgreiðslu skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.5. Iðnaðarsvæði Eyjabakka: breyting á deiliskipulagi.
Tekin fyrir eftir grenndarkynningu tillaga að breytingu á deiliskipulagi iðnaðarsvæði Eyjabakka. Á kynningartíma barst ein athugasemd frá eigendum Tangasund 4-6. Ekki er gerð efnisleg athugasemd við grenndarkynninguna heldur snúa athugasemdir að frágangi lóðar og viðbótarbreytingu á deiliskipulagi.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að sviðsstjóra verði falið breytingin til fullnaðarafgreiðslu skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/20106. Brimketill: deiliskipulag
Tillaga að deiliskipulag fyrir Brimketil tekin fyrir eftir auglýngu. Tillagan var auglýst frá 3. nóvember 2015 til og með 21. desember 2015. Engar athugasemdir bárust og umsagnir gefa ekki ástæðu til breytinga eftir auglýsingu. Tilgangur verkefnisins er að vinna skipulag fyrir hverfisverndarsvæði Brimketils þar sem lögð er áhersla á bætt og öruggara aðgengi og aukið verði gildi svæðisins til útivistar. Í leiðinni er verið að stýra umferð og vernda svæðið fyrir auknum ágangi. Meginmarkmið með deiliskipulagsáætluninni er að skilgreina aðkomu að svæðinu, skilgreina áningastaði og bílastæði og bæta aðstöðu til útivistar á svæðinu í heild. Svæðið er skilgreint sem hverfisverndarsvæði HV2 í Aðalskipulagi Grindavíkurbæjar 2010-2030.
Skipulagsnefnd felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs skipulagið til fullnaðarafgreiðslu skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.7. Deiliskipulag hafnarsvæðis: Breyting
Tekin fyrir óveruleg breyting á deiliskipulagi Hafnargata Ránagata. Breytingin tekur til gatnamóta Ránagötu og Hafnargötu og stækkun á byggingarreit við Seljabót 3.
Skipulagnefnd leggur til við bæjarstjórn að breytingin verði samþykkt skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010 og grenndarkynnt fyrir eigendum Seljabót 1.8. Umsókn um framkvæmdaleyfi: Loftnet við dreifistöðvar.
Erindi frá HS veitum hf. kt. 4312080590. Í erindinu er óskað eftir framkvæmdaleyfi fyrir uppsetningu á möstrum við DRE 118 Austurveg, DRE 101 Túngötu, DRE101 Vigdísavelli og DRE101 Laut.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að framkvæmdaleyfi verði veitt.9. Umsókn um byggingarleyfi: Viðbygging, Seljabót 3
Erindi frá Vélsmiðju Grindavíkur kt.590689-1739 Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir viðbyggingum við Seljabót 1. Erindinu fylgja teikningar frá Þorleifi Björnssyni.
Skipulagsnefnd samþykkir viðbygginu A með fyrirvara um þinglýstan lóðaleigusamning vegna aðkomu við vesturinngang og staðfestri breytingu á deiliskipulagi. Skipulagsnefnd hafnar viðbyggingu B þar sem byggingin samræmist ekki gildandi deiliskipulagi.10. Túngata 10 : Fyrirspurn um breytingar á húsi.
Fyrirspurn frá Anton Narvaéz. Í fyrirspurninni er óskað eftir áliti nenfdarinnar á fyrirhuguðum framkvæmdum við Túngötu 10.
Skipulagsnefnd telur að grenndarkynna þurfi fyrirhugaðar framkvæmdir fyrir íbúum Túngötu 8 og 12 og Mánagötu 5 og 7.