Skipulagsnefnd - 4. fundur
- 20.04.2015
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 16:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 4
- Ritari: Ármann Halldórsson
Nefndarmenn
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmvaramaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Þórir Sigfússonaðalmaður
- Ólafur Már Guðmundssonvaramaður
- Sigurður Guðjón Gíslasonformaður
1. Breyting á deiliskipulagi hesthúsabyggðar, fráveita í rotþró og stækkun byggingarreitar við reiðhöll.
Tekið fyrir aftur eftir grendarkynningu. 2 athugasaemdir bárust sem leiddu í ljós að búið var að gefa út 2 tegundir af lóðablöðum fyrir lóðir Hópsheiði 8,10 og 12. í framhaldið hefur deiliskipulaginu verið breytt til samræmis þess sem er þinglýst á nr. 8 og undirritaður telur samræmast hefðum og venjum við lóðarmál raðhúsa með 3.íbúðum.
Tekið fyrir aftur eftir grenndarkynningu. Tvær athugasemdir bárust sem leiddu í ljós ósamræmi í lóðarblöðum fyrir lóðir Hópsheiði 8,10 og 12. í framhaldi hefur uppdráttum verið breytt til samræmis þess sem er þinglýst á nr. 8 . Sviðsstjóra falið að láta grenndarkynna uppfærð gögn skv 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
2. Breyting á deiliskipulagi: Svartsengi
Tekið fyrir eftir grendarkynningu, uppdrátturinn er hjá CRI í undirskrift.
Tekið fyrir eftir grenndarkynningu. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytinguna og fela Sviðsstjóra að senda Skipulagsstofnun samþykkta deiliskipulagsbreytingu og birta auglýsingu um samþykkt hennar í B-deild Stjórnartíðinda.
3. Umsókn um framkvæmdaleyfi: endurnýjun hitaveitulagnar við Víkurbraut
HS hefur mætt óskum okkar, sjá meðfylgjandi póst frá Gretari.
Erindi frá HS veitum hf. kt. 431208-0590. Í erindinu er óskað eftir framkvæmdaleyfi fyrir lagningu 290 mm DN300/450 hitaveitulögn meðfram Víkurbraut vestanverðri frá Nesvegi að Hópsbraut og tengingu inn á tvo hitaveitubrunna. Einnig er óskað eftir að fá að loka göngustíg meðfram fyrirhugaðri lögn á hluta verktímans sem er áætlaður frá 18. Júní til 18. Júlí. Erindinu fylgja teikningar merktar 101-104 unnar af Verkís verkfræðistofu dags. 16.02.2015. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að framkvæmdaleyfið verði samþykkt.
4. Deiliskipulag miðbæjar - Ránargata og Hafnargata.frh.
Tekið fyrir eftir forkynningu og umfjöllun í hafnarstjórn, skipulagið á að vera tilbúið fyrir auglýsingu, sjá stöðuna á meðfylgjandi skjali.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að skipulagið verði auglýst með áorðnum breytingum skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
5. Skipulagsnefnd: Samþykkt
Málinu frestað.
6. Samþykkt um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa
Málinu frestað.
7. Umsókn um byggingarleyfi: Verbraut 3
Til þess að klára málið þarf að grendarkynna eða vísa til vinnslu í deiliskipulagi.
Erindi frá Hópsnes ehf. kt. 470265-0199. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir u.þ.b. 600 m2 geymsluhúsnæði við óskráða eignarlóð við Verbraut. Erindinu fylgja bygginganefndarteikningar unnar af Guðna Sigurbirni Sigurðssyni kt. 250582-4479 dagsettar 11.3.2015, útgáfa B. Einnig fylgir umsókn um stækkun lóðar við Verbraut 3 og eignarheimildir á 1.025 m2 spildu undir fyrirhugað mannvirki. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að fyrirhuguð framkvæmd verði grenndarkynnt fyrir eigendum Víkurbrautar 1 og 3 og Verbraut 1, 3a og 3b skv. 44 gr. skipulagslaga nr.123/2010.
8. Iðnaðarsvæði i5: Nafnagiftir.
Vantar nafn á lóðina sem Matorka er að fá
Skipulagsnefnd felur sviðsstjóra að nefna fyrstu götu innan reits nr. 1 í rammaskipulagi iðnaðarsvæðis i5 Hraunsvík. Nefndin leggur til að aðrar götur innan iðnaðarsvæðis i5 muni heita eftir víkum í strandlengju Grindavíkur. Gata meðfram affallslögn frá Svartsengi skal heita Víkurgata. Næstu götur skulu heita Krossavík, Sandvík, Mölvík, Katrínarvík og Hvalvík.
9. Breyting á aðalskipulagi:: Syðsti hluti Víkurbrautar.
Lögð er fram tillaga að óverulegri breytingu aðalskipulags Grindavíkurbæjar 2010 -2030 skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin á við syðsta hluta Víkurbrautar sem liggur niður að Sjávarbraut. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt með áorðnum breytingum og auglýsi ákvörðun sýna skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.