Skipulagsnefnd - 28. fundur
- 10.04.2017
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 20:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 28
- Ritari: Ármann Halldórsson
Nefndarmenn
- Sigurður Guðjón Gíslasonformaður
- Þórir Sigfússonaðalmaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Erla Ósk Wissler Pétursdóttiraðalmaður
- Ármann Halldórssonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
- Örn Sigurðssonvaramaður
1.
Lagt fram.
2. Breyting á deiliskipulagi: Norðurhóp 13, 15 og 17
Tekið fyrir eftir athugasemdafrest breyting á deilliskipulagi Norðurhóps 13, 15 og 17. Ein athugasemd barst. í athugasemdinni er framkvæmdinni mótmælt vegna sjónmengunar og ósamræmis. Skipulagsnefnd frestar málinu.
3. Umsókn um byggingarleyfi: Hólmasund 8
Erindi frá Efnaferli ehf. kt. 460897-2549. í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir 820m2 iðnaðarhúsnæði við Hólmasund 8. erindinu fylgja teikningar unnar af Riss verkfræðistofu dagsett 13.3.2017. Skipulagsnefnd bendir á að einungis er ein innkeyrsla inn á lóðina skv. deiliskipulagi. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt og byggingarleyfi verði gefið út af byggingarfulltrúa þegar skilyrðum 4. kafla byggingarreglugerðar nr. 112/2012 er uppfyllt.
4. aðalskipulag Hafnarfjarðar: beiðnu um umsögn
Málinu frestað. Sviðsstjóra falið að afla gagna um málið og leggja málið fyrir bæjarráð.
5. Víkurbraut 34: breyting á aðalskipulagi
Erindi frá Hermanni Ólafssyni. Í erindinu er óskað eftir breytingu á aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2030 vegna Víkurbrautar 34. Óskað er eftir því að reiturinn verði skilgreindur sem verslun og þjónusta svo hægt sé að reka þar gistiheimili. Í gildandi aðalskipulagi er reiturinn skilgreindur sem stofnanareitur. Skipulagsnefndn leggur til við bæjarstjórn unnin verði breyting á aðalskipulagi í samræmi við erindið.
6. Deiliskipulag: Húsatóftir eldisstöð.
Við þurfum fyrst að taka fyrir lýsingu á deiliskipulagi. Stefanía hjá Matorku er að leggja lokahönd á hana þannig að ég læt drög að deiliskipulagi inn sem málsgagn og sendi á ykkur á mánudag lýsinguna. Deiliskipulög eru mun ýtarlegri en lýsing þannig að í þessum drögum eru við að fá meiri upplýsingar en eru í lýsingunni. við erum að horfa til þess að samþykkja lýsinguna til kynningar svo tökum við deiliskipulagið fyrir á næsta fundi.
Málinu frestað.
7. Efrahóp: stækkun byggingarreitar
lóðarhafi óskar efit því að fá að fara út fyrir skilgreindann byggingarreit við Efrahóp 12.
Erindi frá Jóni Emil Halldórssyni. í erindinu er óskað eftir stækkun byggingarreitar við Efrahóp 12. Skipulagsnefnd leggur til bæjarstjórn að breytingin verði samþykkt og hún grenndarkynnt fyrir aðliggjandi lóðum skv. 2 mgr. 43 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.