Skipulagsnefnd - 23. fundur
- 21.11.2016
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 20:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 23
- Ritari: Ármann Halldórsson
Nefndarmenn
- Sigurður Guðjón Gíslasonformaður
- Þórir Sigfússonaðalmaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Erla Ósk Wissler Pétursdóttiraðalmaður
- Ólafur Már Guðmundssonaðalmaður
- Ármann Halldórssonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. Aðalskipulag Garðabæjar: Beiðni um umsögn
Lagt fram. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd.
2. Deiliskipulag miðbæjarkjarna Grindavíkur.
Málinu frestað. Sviðsstjóra falið að boða fund með skipulagsnefnd og bæjarstjórn um málið.
3. Norðurhóp 50-54: Fyrirspurn um breytingu
Erindi frá Arnari Inga Ingólfssyni. Í erindinu er óskað eftir breytingu á hæðarkódum á mælablaði fyrir Norðurhóp 50-54. Breytingin er innan marka deiliskipulags.
Erindi frá Arnari Inga Ingólfssyni. Í erindinu er óskað eftir breytingu á hæðarkódum á mælablaði fyrir Norðurhóp 50-54. Breytingin er innan marka deiliskipulags. Skipulagsnefnd samþykkir erindið.
4. Stapafellsnáma: Matsáætlun
Tekin fyrir tillaga að matsáætlun vegna efnistöku í Stapafelli unnin af Eflu verkfræðistofu dagsett í nóvember 2016 ásamt beiðni um umsögn. Hér þarf að taka tillit til þeirra þátta sem koma fram í bréfi skipulagsstofnunar
Tekin fyrir tillaga að matsáætlun vegna efnistöku í Stapafelli unnin af Eflu verkfræðistofu dagsett í nóvember 2016 ásamt beiðni um umsögn. Skipulagsnefnd telur að afmarka verði raskað svæði með hnitsettum uppdrætti. Einnig telur nefndin að gera verði grein fyrir Árnastígnum um svæðið og hvaða áhrif náman hefur á gönguleiðina. Einnig verði skilgreint hvernig og hvar efni sem gætu haft áhrif á vatnsgæði eru geymd.
5. Stamphólsvegur 5: breyting á deiliskipulagi - minnkun byggingarreitar
Tekin fyrir breyting á deiliskipulagi Stamphólsvegar. Breytingin tekur til minnkunar á byggingarreit og nýtingarhlutfalli úr 0,8 í 0,59. Breytingin hefur ekki áhrif á nágranna
Tekin fyrir breyting á deiliskipulagi Stamphólsvegar. Breytingin tekur til minnkunar á byggingarreit og nýtingarhlutfalli úr 0,8 í 0,59. Breytingin hefur ekki áhrif á nágranna. Um er að ræða breytingu á deiliskipulagi sem umsækjandi hafið áður fengið samþykkt hjá Grindavíkurbæ. Skipulagsnefnd frestar erindinu og felur sviðsstjóra að afla frekari gagna.
6. Hafnargata 26: umsókn um byggingarleyfi
Erindi frá Eldhamar ehf. kt. 4811062060. Í erindinu er óskað eftir breytingu á neðri hæð Hafnargötu 26 í gistiheimili. Erindinu fylgja teikningar unna ef tækniþjónustu SÁ dagsettar 11.11.2016
Erindi frá Eldhamar ehf. kt. 4811062060. Í erindinu er óskað eftir breytingu á neðri hæð Hafnargötu 26 í gistiheimili. Erindinu fylgja teikningar unnar af Tækniþjónustu SÁ dagsettar 11.11.2016. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja erindið.
7. Túngata 8: umsókn um byggingarleyfi
Stefanía Huld Gylfadóttir sækir um leyfi fyrir breytingum á bílskúr sjá teikningar frá Tækniþjónustu SÁ ehf. dags. 16.11.2016
Erindi frá Stefaníu Huld. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi vegna breytinga á bílskúr. Einnig er sótt um að breyta bílskúr í íbúðarhluta. Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin. Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi hönnunargögn liggja fyrir.
8. Víkurbraut 25: breytt notkun á mh 202
Erindi frá Kjartani Sigurðssyni. Í erindinu er óskað eftir því að matshluti 202 á Víkurbraut 25 í íbúð eins og áður var.
Erindi frá Kjartani Sigurðssyni. Í erindinu er óskað eftir því að matshluti 202 á Víkurbraut 25 verði íbúð eins og áður var. Skipulagsnefnd frestar erindinu og felur sviðsstjóra að afla frekari gagna.
9. Umsókn um framkvæmdaleyfi: Reiðstígur við suðurstrandaveg
Erindi frá Brimfaxa. í ewrindinu er oskað eftir framkvæmdaleyfi fyrir reiðstíg meðfram suðurstrandavegi.
Erindi frá Brimfaxa kt. 530410-2260. Í erindinu er óskað eftir framkvæmdaleyfi fyrir reiðveg meðfram Suðurstrandavegi. Framkvæmdinni er lýst í aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2020. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að framkvæmdaleyfi verði samþykkt með fyrirvara um leyfi landeigenda.