Skipulagsnefnd - 21. fundur
- 19.09.2016
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 17:00
- á skrifstofu byggingafulltrúa
- Fundur nr. 21
- Ritari: Ármann Halldórsson
Nefndarmenn
- Sigurður Guðjón Gíslasonformaður
- Þórir Sigfússonaðalmaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Erla Ósk Wissler Pétursdóttiraðalmaður
- Ólafur Már Guðmundssonaðalmaður
- Ármann Halldórssonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. Fiskeldi í Mölvík: umsókn um lóð
Erindi frá Tálkna ehf. kt. 551209-1990. Í erindinu er óskað eftir 26 Ha svæði við Mölvík undir 70.000 m3 af eldisrými fyrir laxfisk. Skipulagsnefnd bendir á að á svæðinu er nú þegar deiliskipulag fyrir annarskonar starfsemi.
Erindi frá Tálkna ehf. kt. 551209-1990. Í erindinu er óskað eftir 26 Ha svæði við Mölvík undir 70.000 m3 af eldisrými fyrir laxfisk. Skipulagsnefnd hafnar erindinu og bendir á að svæðið er nú þegar deiliskipulagt fyrir annars konar starfsemi. Nefndin bendir umsækjanda á svæði til umsóknar á iðnaðarsvæði I5 vestur af Grindavík.
2. HS Orka hf.: Vindorka og 80m mælimastur
Erindi frá HS Orku hf. kt: 680475-0169. Í erindinu er óskað er eftir heimild til að reisa allt að 80 metra hátt mastur til að styðja við frekari vindorkurannsóknir á svæðinu við Mölvík, Staðarlandi. Áætlað er að mælingar standi yfir í eitt ? tvö ár. eftir það verði mastrið fjarlægt.
Skipulagsnefnd bendir á að mörkuð verður stefna í vindorkumálum í yfirstandandi vinnu við endurskoðun aðalskipulags. Skipulagsnefnd tekur jákvætt í erindið og að mælingar verði gerðar við Rauðamel en óskar eftir nákvæmari framkvæmdaleyfisgögnum sbr. 7. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012. Einnig óskar nefndin eftir að fá að nýta gögn vegna mælinga við endurskoðun aðalskipulags.
3. Umsókn um framkvæmdaleyfi: rennslisskurður og göngustígar.
Erindi frá Eldvörpum ehf. í erindinu er óskað eftir framkvæmdaleyfi fyrir lagningar rennslisskurðar og niðurdælingu ásamt nýrra stíga við Bláa lónið. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að framkvæmdaleyfi verði veitt á grundvelli 3 mgr. 43. gr. skipulagslaga nr 123/2010 og reglugerðar um framkvæmdaleyfi og fyrirvari settur í leyfið um samþykki HES vegna breytingar á starfsleyfi Bláa lónsins.
Erindi frá Eldvörpum ehf. Í erindinu er óskað eftir framkvæmdaleyfi fyrir lagningu rennslisskurðar og niðurdælingu ásamt gerð nýrra stíga við Bláa lónið. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að framkvæmdaleyfi verði veitt á grundvelli 3 mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og reglugerðar um framkvæmdaleyfi. Setja verður fyrirvara í leyfið um samþykki HES vegna breytingar á starfsleyfi Bláa lónsins
4. Túngata 5: umsókn um byggingarleyfi
Von á erindi á mánudag, mun óska eftir því að þetta verði tekið fyrir með afbryggðum
Erindi frá Þórkötlu ehf. kt. 440407-1290. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi vegna breytinga á bílskúr við Túngötu 5 í íbúð. Erindinu fylgja teikningar unnar af Tækniþjónustu SÁ ehf. dagsettar 08.09.2016. Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin. Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi hönnunargögn liggja fyrir.
5. Aðalskipulag: Beiðni um breytingu.
Sigurður vék af fundi við afgreiðslu málsins og xxxx kom inn í hans stað. Erindi frá Gísla Grétari Sigurðssyni og Herði Sigurðssyni f.h. landeigenda Hrauns. Í erindinu er farið fram á að stígar og slóðar í landi Hrauns verði fjarlægðir úr aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2020. Sviðsstjóri leggur fram fundargerðir með landeigendum og 4x4 vegna málsins. Skipulagsnefnd bendir á að hluti þeirra stíga sem rætt er um er ekki á aðalskipulagi.
Sigurður vék af fundi við afgreiðslu málsins. Erindi frá Gísla Grétari Sigurðssyni og Herði Sigurðssyni f.h. landeigenda Hrauns. Í erindinu er farið fram á að stígar og slóðar í landi Hrauns verði fjarlægðir úr aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2020. Skipulagsnefnd bendir á að hluti þeirra stíga sem rætt er um er ekki á aðalskipulagi. Skipulagsnefnd hafnar erindi um að fjarlægja úr aðalskipulagi þá stíga sem nú þegar eru skilgreindir og eru enn í notkun. Nefndin felur sviðsstjóra að svara erindinu.