Skipulagsnefnd - 17. fundur
- 18.04.2016
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 17:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 17
- Ritari: Ármann Halldórsson
Nefndarmenn
- Sigurður Guðjón Gíslasonformaður
- Þórir Sigfússonaðalmaður
- Erla Ósk Wissler Pétursdóttiraðalmaður
- Ólafur Már Guðmundssonaðalmaður
- Páll Þorbjörnssonvaramaður
- Ármann Halldórssonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. Umsókn um byggingarleyfi: fjarskiptamastur við Víkurbraut 25.
Mílumenn koma og svara spurningum. Búið að bjóða bæjarstjórn líka.
Erindi frá Mílu ehf. kt. 460207-1690. í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir uppsetningu á 18m fjarskiptamastri við Víkurbraut 25. Erindinu fylgja teikningar unnar af Úti-inni arkitektum dagsettar 16.9.2008. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að umsóknin verði grenndarkynnt eigendum Ásabrautar 1 og 3, Víkurbraut 12, 21a, 25, 26, 28 og 30.
2. Endurskoðun Aðalskipulags Grindavíkur 2010-2030.
Birt Kristín Helgadóttir, umhverfis- og orkuverkfræðingur kemur til að fræða fundarmenn um vindorku. Erindið hennar tekur ca. 20-30 mín og við skulum gefa ca. 20 mín í spurningar (ef það hentar ykkur?). Erindið ber heitið "Vitið í vindinum" og mun hún fara yfir helstu atriði sem hafa þarf í huga við hönnun vindorkuvera, þ.e. allt frá undirbúningi og rannsóknum til reksturs og niðurrifs. Sérstök áhersla verður lögð á umhverfis- og skipulagstengd mál og hvað sveitarfélögin geta gert til að undirbúa sig. Íframhaldið ætti að vera hægt að taka ákvörðun um hvort okkur hugnast að vera með vindmyllugarð í Grindavík og þá í Aðalskipulaginu
Frestað.
3. Breyting á aðalskipulagi: fiskeldi á Stað
Tekið fyrir eftir auglýsingu. Umsagnir bárust frá Náttúrufræðistofnun, minjastofnun, hafrannsóknarstofnun, matvælastofnun og vegagerð. Engar athugasemdir frá almenningi bárust.
Tekið fyrir eftir auglýsingu. Umsagnir bárust frá Umhverfisstofnun, Náttúrufræðistofnun, Minjastofnun Íslands og Vegagerðinni. Engar athugasemdir bárust frá almenningi. Einnig er tekin fyrir greinargerð með endanlegri áætlun skv. lögum nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytingu á aðalskipulagi ásamt umhverfisskýrslu og að skipulagsfulltrúa verið falið það til fullnaðarafgreiðslu skv. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
4. Deiliskipulag: fiskeldi á Stað
Tekið fyrir eftir auglýsingu. Umsagnir bárust frá Náttúrufræðistofnun, minjastofnun, hafrannsóknarstofnun, matvælastofnun og vegagerð. Engar athugasemdir frá almenningi bárust.
Tekið fyrir eftir auglýsingu. Umsagnir bárust frá Umhverfisstofnun, Náttúrufræðistofnun, Minjastofnun Íslands, Hafrannsóknarstofnun, Matvælastofnun og Vegagerðinni. Engar athugasemdir bárust frá almenningi. Einnig er tekin fyrir greinargerð með endanlegri áætlun skv. lögum nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja deiliskipulagið ásamt umhverfisskýrslu og að skipulagsfulltrúa verið falið það til fullnaðarafgreiðslu skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
5. Verbraut 3: umsókn um byggingarleyfi, breytt útlit og notkun.
Erindi frá Hópsnes ehf. Kt. 470265-0199. í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir útlitsbreytingu og breyttri notkun á geymslu í þvottahús. Erindinu fylgja teikningar unnar af Riss teiknistofu dagsettar xxxx og Eflu verkfræðistofu dagsett 21.3.2016.
Erindi frá Hópsnes ehf. Kt. 470265-0199. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir útlitsbreytingu og breyttri notkun á geymslu í þvottahús. Erindinu fylgja teikningar unnar af Riss teiknistofu dagsettar 7.4.2016 og Eflu verkfræðistofu dagsett 21.3.2016. Skipulagsnefnd samþykkir erindið og bendir á að gera gera þarf grein fyrir bílastæðum vegna aukins fjölda starfsmanna. Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi hönnunargögn hafa borist ásamt jákvæðum umsögnum HES og Vinnueftirlits.
6. Umsókn um framkvæmdaleyfi: Tónlistahátíð við Kleifavatn.
Erindi frá Taktfakt ehf. kt. 4103162340. Í erindinu er óskað eftir framkvæmdaleyfi fyrir uppsetningu á tækjum og búnaði tengdum viðburðahaldi við Kleifarvatn.
Erindi frá Taktfakt ehf. kt. 4103162340. Í erindinu er óskað eftir framkvæmdaleyfi fyrir tímabundinni uppsetningu á tækjum og búnaði tengdum viðburðahaldi við Kleifarvatn. Skipulagsnefnd telur erindið ekki framkvæmdaleyfisskylt eins því er lýst í umsókninni.
7. Deiliskipulag: Víðihlíð og nágrenni
Tillaga að deiliskipulagi Víðihlíðar og nágrennis tekin fyrir eftir auglýsingu. Þrjár athugasemdir bárust frá almenningi, umsagnir bárust frá Umhverfisstofnun, náttúrufræðistofnun og Heilbrigðiseftirliti. Umsagnaraðila gerður ekki athugasemdir við deiliskipulagið Í athugasemdum frá almenningi er mótmælt byggingarreit suður af Víðihlíð og tillaga að annarskonar fyrirkomulagi fylgir einni þeirra. Skipulagsnefnd samþykkti á síðasta fundi innkomnar athugasemdir að hluta og er umræddur byggingareitur tekin út af tillögunni og byggingareitur austanmegin við Víðihlíð lítillega.
Tillaga að deiliskipulagi Víðihlíðar og nágrennis tekin fyrir eftir auglýsingu. Þrjár athugasemdir bárust frá almenningi, umsagnir bárust frá Umhverfisstofnun, Náttúrufræðistofnun og Heilbrigðiseftirliti. Umsagnaraðilar gerðu ekki athugasemdir við deiliskipulagið. Í athugasemdum frá almenningi er mótmælt byggingarreit suður af Víðihlíð og tillaga að annars konar fyrirkomulagi fylgir einni þeirra. Skipulagsnefnd samþykkti á síðasta fundi innkomnar athugasemdir að hluta og er umræddur byggingareitur tekin út af tillögunni og byggingareit austanmegin við Víðihlíð breytt lítillega. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt og sviðsstjóra verði falið það til fullnaðarafgreiðslu skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Einnig verði sviðstjóra falið að svara þeim sem gerðu athugasemdir á þann hátt að tekið hafi verið tillit til athugasemda er varða byggingarreit suður af Víðihlíð.
8. Staðarsund 2-16: Fyrirspurn um stækkun
Erindi frá eigendum Staðarsunds 2, 4, 6, 8, 10 og 12. Í erindinu er óskað eftir stækkun á byggingarreit um 9 m. til suðurs og 3,1 m. til austurs. Erindinu fylgja teikningar unnar af tækniþjónustu SÁ dagsett 29.3.2016
Erindi frá eigendum Staðarsunds 2, 4, 6, 8, 10 og 12. Í erindinu er óskað eftir stækkun á byggingarreit um 9 m. til suðurs og 3,1 m. til austurs. Erindinu fylgja teikningar unnar af tækniþjónustu SÁ dagsett 29.3.2016. Skipulagsnefnd samþykkir að unnin verði óveruleg breyting á deiliskipulagi á kostnað framkvæmdaraðila og það grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum í Staðarsundi.
9. Sveitarfélagið Ölfus: Beiðni um umsögn.
Erindi frá sveitarfélaginu Ölfuss. Í erindinu er óskað eftir umsögn Grindavíkurbæjar á breytingu á deiliskipulagi fyrir Hellisheiðarvirkjun.
Erindi frá sveitarfélaginu Ölfuss. Í erindinu er óskað eftir umsögn Grindavíkurbæjar á breytingu á deiliskipulagi fyrir Hellisheiðarvirkjun. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir.
10. Hafnargata 6: fyrirspurn um breytta notkun
Erindi frá Bergbúa ehf. kt. 680406-1620. Erindið er fyrirspurn um breytta notkun á hluta Hafnargötu 6. Breytingin felur í sér að hluta af Hafnargötu 6 verði gerður að tveimur gistiíbúðum.
Erindi frá Bergbúa ehf. kt. 680406-1620. Erindið er fyrirspurn um breytta notkun á hluta Hafnargötu 6. Breytingin felur í sér að hluta af Hafnargötu 6 verði gerði gerður að tveimur gistiíbúðum. Skipulagsnefnd telur að umrædd framkvæmd rúmist innan skilgreininga gildandi deiliskipulags en farið verður fram á að samþykki meðeiganda Hafnargötu 6 fyrir framkvæmdinni. Einnig þarf að sækja til byggingarfulltrúa fyrir framkvæmdinni. Með slíku erindi þarf að skila inn teikningum ásamt jákvæðum umsögnum HES og Vinnueftirlits. Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi hönnunargögn hafa borist.
11. Staður: fyrirspurn um fjárhús
Erindi frá Stakkavík ehf. kt. 480388-1519. Í erindinu er spurt um hvort leyfi fengist fyrir því að rífa hluta fjárhúsa fastanúmer 226-7717 merking 020101 og koma þar fyrir húsi skv. teikningum unnum af Verkfræðistofu Suðurnesja dagsettar 3.8.2010. Einnig er spurt hvort greiða þurfi gatnagerðargjöld vegna þessa. Skipulagsnefnd telur að umrædd fyrirspurn fyrir endurnýjun á fjárhúsum rúmist innan skilgreininga gildandi aðalskipulags. Ekki er hægt að taka afstöðu til bygggingarleyfis án frekari gagna. Sviðsstjóra falið að svara erindinu með vísan í 3. gr. laga um gatnagerðargjöld nr. 153/2006. Þar segir ” Gatnagerðargjald skal innheimt ef reist er ný og stærri bygging í stað annarrar á sömu lóð sem stækkuninni nemur.“