Skipulagsnefnd - 51. fundur
- 19.03.2015
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 51
- Ritari: Ármann Halldórsson
Nefndarmenn
- Sigurður Guðjón Gíslasonformaður
- Þórir Sigfússonaðalmaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Erla Ósk Wissler Pétursdóttiraðalmaður
- Ólafur Már Guðmundssonvaramaður
- Ármann Halldórssonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. Vindorkugarður á Reykjanesi: viljayfirlýsing
Málinu frestað.
2. Brunavarnaráætlun: 2014-2017
Slökkvistjóri kemur og kynnir vinnu við viðbragðsáætlun fyrir Grindavík og brunavarnaáætlannir stofnana bæjarins.$line$
Ásmundur Jónsson slökkviliðstjóri kom inn á fundinn og kynnti drög að brunavarnaráætlun og stöðu viðbragðsáætlana stofnana bæjarins. Skipulagsnefnd hvetur stofnanir og fyrirtæki til þess að ljúka við gerð viðbragðsáætlana sem fyrst.
3. Svartsengi: Borholur SVA-25 og SVA-26.
Erindi frá Skipulagsstofnun. Í samræmi við 6. gr. laga nr 106/2000 m.s.b og 11. gr. reglugerðar nr. 1123/2005 um mat á umhverfisáhrifum, er óskað eftir umsögn um hvort og á hvaða forsendum ofangreind framkvæmd skuli háð mati á umhverfisáhrifum að teknu tilliti til 2. viðauka í framangreindum lögum. Skipulagsnefnd telur að nægjanlega sé getið á um framkvæmdina í tilkynningu til Skipulagsstofnunar dagsetta í febrúar 2015 en bendir á að framkvæmdin er háð framkvæmdaleyfi sbr. reglugerð nr. 772/1997.
4. Deiliskipulag miðbæjar - Ránargata og Hafnargata.frh.
Skipulagið á eftir að fara í rýni en ég að ekki von á að það breytist efnislega.
Sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs falið að ræða við hagsmunaaðila í samræmi við umræður á fundinum.
5. Deiliskipulag, Eldvörp rannsóknarborholur.frh
engar athugasemdir bárist við forkynningu. næsta skref er að auglýsa eftir athugasemdafrest í 6 vikur og umsagnir umsagnaraðila
Tekið fyrir að nýju eftir forkynningu. Engar athugasemdir bárust á meðan forkynningu stóð. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði auglýst skv. 41 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
6. Breyting á deiliskipulagi: Svartsengi:
Tekið fyrir að nýju, skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkt verði óveruleg breyting á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs verði falið að grenndarkynna tillöguna fyrir NLI, Bláa Lóninu og CRI.
7. Laut: Deiliskipulag
Tekið fyrir að beiðni bæjarstjóra.
Málinu frestað.
8. Deiliskipulag miðbæjarkjarna Grindavíkur.
Gögn verða vonandi tilbúin fyrir 17 mars
Málinu frestað.
9. Umsókn um framkvæmdaleyfi: endurnýjun hitaveitulagnar við Víkurbraut
Málinu frestað.
10. Umsókn um byggingarleyfi: Sogdæluhús við Norðurljósaveg 9
Málinu frestað.
11. Auðlindastefna og Eldfjallagarður: Skýrsla
Lagt fram.
Málinu frestað.
12. Skipulagsnefnd: Samþykkt
Málinu frestað.
13. Samþykkt um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa
Málinu frestað.
14. Sandgerðisbær: Breyting á aðalskipulagi.
Málinu frestað.
15. Umsókn um byggingarleyfi: Verbraut 3
Málinu frestað.
16. Vatnstankur í Þórkötlustaðarhverfi: fyrirspurn um sölu.
Málinu frestað.