Skipulagsnefnd - 8. fundur
- 24.09.2015
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 17:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 8
- Ritari: Ármann Halldórsson
Nefndarmenn
- Sigurður Guðjón Gíslasonformaður
- Þórir Sigfússonaðalmaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Erla Ósk Wissler Pétursdóttiraðalmaður
- Ólafur Már Guðmundssonaðalmaður
- Ármann Halldórssonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. Endurskoðun Aðalskipulags Grindavíkur 2010-2030.
Lögð fram skipulags- og matslýsing fyrir endurskoðun aðalskipulags.
Tekin fyrir skipulags- og matslýsing vegna endurskoðun aðalskipulags Grindavíkur 2010-2030. Tilgangurinn með gerð skipulagslýsingar er að tryggja aðkomu almennings og hagsmunaaðila að skipulagsferlinu á fyrstu stigum þess, auka gagnsæi, tryggja betra upplýsingaflæði, skila betri og markvissari skipulagsvinnu og gefa sveitarstjórnum og þeim sem koma að ferlinu betri yfirsýn allt frá fyrstu skrefum. Helstu viðfangsefni endurskoðunarinnar
Helstu viðfangsefni endurskoðunar aðalskipulags Grindavíkur 2010-2030 eru eftirfarandi:
- Setja stefnu um svæðið milli i5 og i4, en skipulagi svæðisins var frestað við síðustu endurskoðun aðalskipulagsins.
- Setja skýrari skilmála og stefnu um ferðaþjónustu.
- Setja skilmála um iðnaðarstarfsemi á iðnaðarsvæði i4.
- Endurskoða stefnu um málaflokkinn opin svæði, útivist og íþróttir.
- Meta þörfina fyrir endurskoðun á ákv. þáttum samgöngumála.
- Uppfærsla uppdrátta og greinargerðar m.t.t. breytinga sem gerðar hafa verið á aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2030.
- Samræming aðalskipulags við ný skipulagslög og nýja skipulagsreglugerð.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að skipulags- og matslýsingin verði samþykkt skv. 30 gr. skipulagslaga nr.123/2010 og sviðsstjóra verði falið að auglýsa hana.2. Umferðaröryggisáætlun: Ábendingar um umferðarmerki
okkur er frjálst að gera þessar breytingar að undangenginni umsögn lögreglu. við höfum áður hafnað beiðni um að taka niður stöðvunarskyldu við Leynisbraut/Heiðahraun
Erindi frá Gunnari Vilbergssyni. Í erindinu koma fram ábendingar um umferðarskilti í Grindavík.
Erindi frá Gunnari Vilbergssyni. Í erindinu koma fram ábendingar um umferðarskilti í Grindavík. Skipulagsnefnd þakkar fyrir ábendingarnar og felur sviðsstjóra að leggja þær fyrir umferðaröryggisnefnd og hafnarstjórn til umsagnar. Jafnframt óskar nefndin eftir tillögum að umferðarmerkingum við iðnaðarsvæðið umhverfis Eyjasund.
3. Gamli bærinn: deiliskipulag
Tekið fyrir eftir forkynningu. Það er uppdráttur með sem sýnir breytingarnar með gulu og minnisblað um breytingarnar.
Tekið fyrir eftir forkynningu. Gerðar voru eftirfarandi breytingar á tillögunni eftir forkynningu: Nýjum lóðum fækkað; allar nýjar lóðir við Vesturbraut voru felldar út, við Kirkjustíg voru langflestar lóðir felldar út, tveimur lóðum haldið eftir á móti þeim sem fyrir eru, gatan verður áfram botngata. Gatan Kirkjustígur mun flytjast örlítið til vesturs, í samræmi við lóðamörk húsanna nr. 1-7. Í fyrri tillögunni var gatan færð aðeins til og lóðir stækkaðar út í götu, þannig að lóðirnar minnka þá ekki með þessu.
Svæði fyrir grenndargáma sem var staðsett við Verbraut fellt út, gámar verða á lóð nr. 4 við götu C. Búið er að taka út af uppdrætti tákn um matjurtagarða og beitiland. Einnig er búið að breyta texta í kaflanum um Opin svæði í samræmi við það.
Tveimur skýringaruppdráttum bætt við, varðveisluheildir og fornleifar.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með áorðnum breytingum.4. Fjárhagsáætlun 2016-2019: Grindavíkurbær og stofnanir
Málaflokkarnir mínir eru 7,8,9,11,13211,3100 (hluti ekki allt) 39og 51.$line$8 og 11 á líklegast heima inn á borði umhverfisnefndar. Óska eftir tillögum frá ykkur
Málið rætt. Sviðstjóra falið að funda með umhverfisnefnd vegna umhverfismála.
5. Fundadagatal Grindavíkurbæjar: 2015-2016
Lagt fram.
6. Deiliskipulag norðan Hópsbrautar vesturhluti: Ósk um breytingu.
gildandi skipulag er að finna hér http://skipulagsaaetlanir.skipulagsstofnun.is/skipulagvefur/display.aspx?numer=7819$line$
Erindi frá Trésmiðju Heimis kt. 570102-3460. Í erindinu er óskað efir breytingu á deiliskipulagi norðan Hópsbrautar. Óskað eftir því að lóðirnar Norðurhóp 1,3,5 og 7,9,11 verði gerðar að raðhúsalóðum með fjórum íbúðum í stað þriggja.Erindinu fylgja teikningar dagsettar 4.9.2015 Skipulagsnefnd tekur vel í erindið og felur sviðsstjóra að láta vinna gögnin fyrir breytinguna.
7. Ásvellir 9: umsókn um byggingarleyfi
Eigandi sækir um endurútgáfu á byggingarleyfi sem samþykkt var 1. júní 1994 ásamt útlitsbreytingum sjá meðfylgjandi teikningar.
Erindi frá Brynjari Bergman Péturssyni. Í erindinu er óskað eftir endur útgáfu á byggingarleyfi fyrir sólstofu við Ásvelli 9. Erindinu fylgja teikningar unnar af teiknistofunni dagsettar 04.03.1991. Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin. Byggingarleyfi verður gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi hönnunargögn hafa borist.
8. Tangasund 5: umsókn um byggingarleyfi
H.H.Smíði ehf. Sækir um leyfi fyrir breytingum á áður samþykktu byggingarleyfi. Breytingar verða gerðar á þaki, gluggum og hurðum. Sjá meðfylgjandi teikningar unnar af Verkfræðistofu Suðurnesja dags. 14.09.15
Málinu frestað. Sviðsstjóra falið að afla frekari gagna.
9. Göngu- og hjólreiðastígur frá Bláa Lóni að Reykjanesbraut
Ég er búinn að skrifa undir verksamning við Gísla á hrauni.
Lagt fram.
10. Brimketill: deiliskipulag
Til kynningar, athugasemdir/ábendingar vel þegar við getum ekki samþykkt til auglýsingar fyrr en Skipulagsstofnun er búin að staðfesta aðalskipulagsbreytinguna með auglýsingu í b-deild.
Málinu frestað.
11. Landsskipulagsstefna: Beiðni um umsögn þingsályktunnar.
Lagt fram.
12. Seljabót 3: ósk um stækkun lóðar
Erindi frá Vélsmiðju Grindavíkur kt. 590689-1739. Í erindinu er óskað eftir stækkun lóðar til austurs við Seljabót 3 undir bílastæði. Skipulagsnefnd hafnar erindinu og bendir á að tillagan samræmist ekki deiliskipulagsáætlun fyrir svæðið.