Skipulagsnefnd - 39. fundur
- 19.03.2018
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 17:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 39
- Ritari: Ármann Halldórsson
Nefndarmenn
- Sigurður Guðjón Gíslasonformaður
- Þórir Sigfússonaðalmaður
- Erla Ósk Wissler Pétursdóttiraðalmaður
- Ólafur Már Guðmundssonaðalmaður
- Ámundínus Örn Öfjörðvaramaður
- Ármann Halldórssonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. Beitingaskúrar við Vesturbraut: ósk um afturköllun leyfis til niðurrifs
Erindi frá Minja- og sögufélagi Grindavíkur. Í erindinu er þar sem óskað er eftir því að leitað verði umsagnar Minjastofnunar fyrir niðurrifi á Verbraut 1. Frístunda- og menningarnefnd hefur bókað um málið.
Erindi frá Minja- og sögufélagi Grindavíkur. Í erindinu er óskað eftir því að leitað verði umsagnar Minjastofnunar fyrir niðurrifi á Verbraut 1. Lagt er fram til atkvæðagreiðslu hvort leita eigi umsagnar Minjastofnunar og afturkalla leyfi til niðurrifs tímabundið. Tillögunni er hafnað með 4 atkvæðum gegn einu atkvæði B lista.
2. Verbraut 1: umsókn um niðurrif
Erindi frá Hópsnes ehf. kt. 470265-0199. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir niðurrifi á Verbraut 1 landnúmer 129131. Áður hafði bæjarstjórn samþykkt niðurrif fyrir matshluta 1 við Verbraut 1 með fyrirvörum. Hópsnes hefur uppfylgt skilyrði um samþykki meðeigenda þar sem Hópsnes er orðin eigandi beggja matshluta.
Erindi frá Hópsnes ehf. kt. 470265-0199. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir niðurrifi á mannvirki við Verbraut 1 landnúmer 129131. Lagt er til við bæjarstjórn að byggingaráformin verði samþykkt. Tillagan er samþykkt með 4 atkvæðum gegn einu atkvæði B lista. Fulltrúi B lista lagði til að afgreiðslunni yrði frestað meðan beðið yrði umsagnar Minjastofnunar.
Nefndin bendir á að á lóðinni eru skráðar fornminjar.3. Víðgerði: gatnagerð 2018
Taka þarf ákvörðun um hvernig skuli bregða sér í því að dreifistöð HS veitna er fyrir einni lóð.
Sviðsstjóra falið að sleppa lóð sem nær undir spennustöð.
4. Iðnaðarsvæði á Reykjanesi: breytingar á afmörkun
Tekin fyrir breyting á afmörkum deiliskipulags við Reykjanesvirkjun vegna samræmingar við deiliskipulags Gunnuhvers.
Lögð er fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi iðnaðar- og orkuvinnslusvæði á Reykjanesi, dagsett í mars 2018. Breytingatillaga gerir ráð fyrir að deiliskipulagsmörkum svæðisins verði breytt í nágrenni við Gunnuhver. Breytingin er til þess fallin að samræma deiliskipulagsmörk iðnaðar- og orkuvinnslusvæði og skipulagsmörk nýs deiliskipulags, sem lagt er fram samhliða breytingartillögu þessari. Tillagan hefur verið grenndarkynnt skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br.
Skipulagsnefnd leggur til að sveitarstjórn samþykki að auglýsa tillöguna og feli skipulagsfulltrúa að senda tillögu til Skipulagsstofnunar.5. Gunnuhver: deiliskipulag
Tekin fyrir leiðrétt tillaga að deiliskipulagi fyrir Gunnuhver eftir auglýsingu þar sem fyrirhugað er að bæta og gera aðgengi að svæðinu betra. Tillagan var auglýst frá 5. Júlí 2017 til 17. ágúst 2017 með athugasemdafresti á sama tíma. Í leiðréttri tillögu er deiliskipulagssvæðið minnkað og nær nú yfir 22 ha í stað 35 ha.
Tekin fyrir leiðrétt tillaga að deiliskipulagi fyrir Gunnuhver eftir auglýsingu þar sem fyrirhugað er að bæta og gera aðgengi að svæðinu betra. Tillagan var auglýst frá 5. júlí 2017 til 17. ágúst 2017 með athugasemdafresti á sama tíma. Í leiðréttri tillögu er deiliskipulagssvæðið minnkað og nær nú yfir 22 ha í stað 35 ha.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagið verði afgreitt skv. 1. mgr. 42. skipulagslaga nr. 123/2010 og feli skipulagsfulltrúa að senda tillögu til Skipulagsstofnunar.6. Stamhólsvegur 4: Fyrirspurn um lóð.
Erindi frá Vigni Kristinnsyni. Í Erindinu er óskað eftir því að stofnuð verði 500 m2 lóð við Stamphólsveg 4 með nýtingarhlutfall 0,5. á lóðina er fyrirhugað að reisa mannvirki í pakkhúsastíl fyrir vinnustofu og verslun. Erindinu fylgja teikningar.
Erindi frá Vigni Kristinssyni. Í erindinu er óskað eftir því að stofnuð verði 500 m2 lóð við Stamphólsveg 4 með nýtingarhlutfall 0,5. Á svæðinu er fyrirhugað að reisa mannvirki í pakkhúsastíl fyrir vinnustofu og verslun. Erindinu fylgja skissur. Skipulagsnefnd óskar eftir skriflegu leyfi eigenda Stamphólsvegar á 2 á því að lóð hans verði minnkuð sem nemur innkeyrslu. Einnig óskar nefndin eftir tillögu um samnýtingu á aðkomu inn á lóðirnar Stamphólsveg 2 og 4.
7. Víkurbraut 20: umsókn um byggingarleyfi
Erindi frá Þórkötlu ehf. kt. 440407-1290 í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir breytingum á Víkurbraut 20. Breytingarnar fela í sér að þak við bílskúr verður hækkaður. Erindinu fylgja teikningar unnar af tækniþjónustu SÁ.
Málinu frestað.
8. Austurvegur 24a: umsókn um byggingarleyfi
Erindi frá Þórkötlu ehf. kt. 440407-1290 í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir breytingum á Austurveg 24A. Von á teikningum á mánudag
Málinu frestað.
9. Norðurhóp 64: Umsókn um lóð
Erindi frá Vigni j ehf. kt. 581201-4270. í erindinu er óskað eftir lóð við Norðurhóp 64
Erindi frá Vigni J ehf. kt. 581201-4270. Í erindinu er óskað eftir lóð við Norðurhóp 64. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn erindið verði samþykkt.
10. Norðurhóp 62: Umsókn um lóð
Erindi frá H.H. smíði kt. 430800-2480. í erindinu er óskað eftir lóð við Norðurhóp 64
Erindi frá H.H. smíði kt. 430800-2480. Í erindinu er óskað eftir lóð við Norðurhóp 64. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn erindið verði samþykkt.
11. Staðarsund 3: Umsókn um byggingarleyfi
Erindi frá H.H. smíði kt. 430800-2480. í erindinu er óskað eftir staðfestingu á áður samþykktum byggingaráformum með undirritun nágranna. Við útsetningu lóða kom í ljós að samþykkta tillagan samræmist ekki deiliskipulagi hvað varðar byggingareit.
Erindi frá H.H. smíði kt. 430800-2480. Í erindinu er óskað eftir staðfestingu á áður samþykktum byggingaráformum með undirritun nágranna. Við útsetningu lóða kom í ljós að samþykkta tillagan samræmist ekki deiliskipulagi hvað varðar byggingareit. Fyrir liggur samþykki eigenda við Staðarsund 5. Samþykkt.
12. Austurvegur 26b: fyrirspurn um stækkun
Forsvarsmenn 240 ehf. komu inn á fundinn og kynntu áætlanir sínar. Málinu frestað.
13. Harbour view: Fyrirspurn um þyrlupall
Forsvarsmenn 240 ehf. komu inn á fundinn og kynntu áætlanir sínar. Málinu frestað.