Samfélagsnefnd - 10. fundur
- 09.03.2026
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 16:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 10
- Ritari: Nökkvi Már Jónsson
Nefndarmenn
- Ásrún Helga Kristinsdóttirformaður
- Eva Lind Matthíasdóttirvaraformaður
- Inga Fanney Rúnarsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Birgitta Rán Friðfinnsdóttirvaramaður
Starfsmenn
- Nökkvi Már Jónssonsviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Frumkvæðisathugun - Eftirlit með fóstri
Til upplýsingar fyrir nefndina.
Nefndinni er gerð grein fyrir erindi Gæða- og efirlitsstofnunar er varðar frumkvæðisathugun stofnunarinnar á eftirliti barnaverndarþjónustu með fósturbörnum.
2. Samstarfssamningar á frístunda- og menningarsviði 2026
Farið yfir drög að samstarfssamningum á frístunda- og menningarsviði 2026.
Lagðir eru fram samstarfssamningar á frístunda- og menningarsviði vegna ársins 2026. Nefndin vísar samningunum til umfjöllunar og afgreiðslu í bæjarráði.
3. Skólahald í Grindavík - Haust 2026
Ráðningarferlið kynnt
Ferli vegna ráðningar nýs skólastjóra samrekins leik- og grunnskóla kynnt fyrir nefndinni.
4. Dagmæður - húsnæði í eigu bæjarins
Leigusamningur lagður fram og ræddur í samhengi við bundna gjaldskrá.
Sviðsstjóra falið leggja fram endanleg drög að leigusamningi á næsta fundi nefndarinnar.
5. Þjónustugjaldskrá Grindavíkurbæjar 2026
Þjónustugjaldskrá 2026 rædd með tilliti til þeirra málaflokka er heyra undir nefndina.
Varðandi gjaldskrá leikakóla er lagt til að horft verði til sama gjalds og var í gildi árið 2024. Jafnframt lagt til að horft verði til nýrrar nálgunar á gjaldskrá leikskóla í fjárhagsáætlun 2027.
6. Heiðursveggur íþróttafólks í Grindavík
Lögð fram drög að reglum Heiðursveggjar íþróttanna í Grindavík.
Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.