Samfélagsnefnd - 15. fundur
- 16.09.2026
- Fundargerð
- Kl. 15:00 - 15:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 15
- Ritari: Nökkvi Már Jónsson
Nefndarmenn
- Valgerður Jennýjardóttirformaður
- Valgerður Ágústsdóttirvaraformaður
- Eva Lind Matthíasdóttiraðalmaður
- Jón Breki Einarssonaðalmaður
Starfsmenn
- Nökkvi Már Jónssonsviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Sjómannadagurinn 2026
Rætt um hvernig til tókst og hvað má betur fara fyrir næstu hátíð. Minnisblað um framtíð hátíðarhalda í tengslum við sjómannadaginn jafnframt lagt fram.
2. Samstarfssamningar á frístunda- og menningarsviði 2027
Lagt fram yfirlit yfir samstarfssamninga á frístunda- og menningarsviði.
3. Áætlun um frístundastarf fyrir börn og ungmenni í Grindavík
Lögð er fram áætlun um frístundastarf fyrir börn og ungmenni í Grindavík. Nefndin leggur til að vægi íþróttamiðstöðvar verði aukið sem megin vettvangur félags- og íþróttastarfs fyrir börn í Grindavík.
4. Leiguíbúðir aldraðra
Sótt er um íbúð fyrir eldri borgara í Víðihlíð. Umsækjandi uppfyllir ekki aldursviðmið reglna um úthlutun og er ekki í þörf fyrir félagslega aðstoð og stuðning til að geta búið á eigin heimili í skilningi reglnanna. Umsókninni er því synjað enda telur nefndin ekki tilefni til að veita undanþágu frá reglunum að þessu leyti.
5. Leikskólamál - Sveitarfélagið Vogar
Lagt fram erindi frá Sveitarfélaginu Vogum sem snýr að því að börn á leikskólaaldri á biðlista eftir leikskólaplássi í Vogum fái leikskólavist í Grindavík. Nefndin telur vert að skoða erindið en þó með þeim fyrirvara að slíkt samkomulag hafi ekki áhrif á áhættumiðaða ákvörðunartöku um skólahald í sveitarfélaginu.