Samfélagsnefnd - 1. fundur
- 16.10.2024
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 17:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1
- Ritari: Nökkvi Már Jónsson
Nefndarmenn
- Ásrún Helga Kristinsdóttirformaður
- Eva Lind Matthíasdóttirvaraformaður
- Snædís Ósk Guðjónsdóttiraðalmaður
- Inga Fanney Rúnarsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
- Nökkvi Már Jónssonsviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs
1. Samfélagsnefnd - Starfshættir o.fl.
Farið almennt yfir starfshætti nefndarinnar, erindisbréf og o.fl.
Erindisbréf samfélagsnefndar lagt fram og rætt. Nefndin ákveður að hafa funda reglulega á öðrum miðvikudegi í mánuði hverjum kl. 13:00. Reglulegur fundarstaður verður salur bæjarstjórnar í Grindavík en í Tollhúsinu til vara.
2. Samfélagsnefnd - Lögboðin verkefni
Sviðsstjórar fara yfir lögboðin (og ólögboðin) verkefni sem falla að málefnasviði samfélagsnefndar.
Nökkvi Már Jónsson, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs fer yfir þau verkefni sem verið er að sinna hjá sveitarfélaginu sem áður heyrðu undir félagsmálanefnd og fræðslunefnd. Eggert Sólberg Jónsson sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs fer yfir þau verkefni sem áður heyrðu undir frístunda- og menningarnefnd.
3. Starfsstyrkir á frístunda- og menningarsviði 2025
Farið yfir samninga við félög og félagasamtök vegna komandi árs.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarnefndar fer yfir stöðu á samningum Grindavíkurbæjar við félög og félagasamtök vegna líðandi og komandi árs.
4. Dagskrá í Grindavík 10. nóvember 2024
Rætt um hvernig minnast skuli þess að ár verður liðið frá rýmingu Grindavíkurbæjar.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs leggur fram drög að dagskrá í Grindavík í tilefni af því að ár er liðið frá því að sveitarfélagið var rýmt.