Samfélagsnefnd - 7. fundur
- 28.10.2025
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 16:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 7
- Ritari: Nökkvi Már Jónsson
Nefndarmenn
- Ásrún Helga Kristinsdóttirformaður
- Eva Lind Matthíasdóttirvaraformaður
- Snædís Ósk Guðjónsdóttiraðalmaður
- Inga Fanney Rúnarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Nökkvi Már Jónssonsviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Útleiga á íbúðum í eigu Grindavíkurbæjar.
Samfélagsnefnd upplýst um stöðu félagslegs leiguhúsnæðis í Grindavík.
Samfélagsnefnd er gerð grein fyrir stöðu félagslegs leiguhúsnæðis í eigu Grindavíkurbæjar. Fyrir liggur að íbúðir í Víðihlíð verði tilbúnar til útleigu um áramót. Starfsfólki félagsþjónustu er veitt heimild til að huga að eftirspurn Grindvíkinga til leigu þeirra.
2. Íþróttafólk Grindavíkur 2025
Með hvaða hætti er rétt að standa að vali á íþróttafólki Grindavíkur 2025?
Til umræðu er fyrirkomulag tilnefninga til íþróttafólks Grindavíkur fyrir árið 2025. Samfélagsnefnd leggur til að horfið verður til þess fyrirkomulags sem var við lýði fyrir rýmingu, þ.e. í samræmi við verklagsreglur vegna vals á íþróttafólki Grindavíkur. Stefnt er að því að kjörið fari fram í desember nk. en viðurðurinn sjálfur í janúar 2026.
3. Barnaverndarþjónusta Samvinna
Samfélagsnefnd upplýst um framvindu málsins sem og ýmsar áskoranir í barnaverndarþjónustu.
Samfélagsnefnd er upplýst um framvindu samnings við Suðurnesjabæ um að vera leiðandi sveitarfélag gagnvart Grindavíkurbæ. Samningurinn er í yfirlestri í mennta- og barnamálaráðuneytinu og er tíðinda að vænta.