Samfélagsnefnd - 7. fundur
- 14.05.2025
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 16:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 7
- Ritari: Nökkvi Már Jónsson
Nefndarmenn
- Ásrún Helga Kristinsdóttirformaður
- Eva Lind Matthíasdóttirvaraformaður
- Snædís Ósk Guðjónsdóttiraðalmaður
- Inga Fanney Rúnarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Nökkvi Már Jónssonsviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Barnaverndarþjónusta Samvinna
Samningur um barnaverndarþjónustu lagður fram til kynningar og umsagnar.
Lögð eru fram drög að samningi við Suðurnesjabæ um samvinnu í barnaverndarþjónustu.
2. Sjóarinn síkáti 2025
Drög að dagskrá hátíðarinnar kynnt.
Rætt um dagskrá í tengslum við sjómannadaginn hinn 1. júní nk. Stefnt að því að hún verði birt á heimasíðu sveitarfélagsins um miðja næstu viku.
3. Útleiga á íbúðum í eigu Grindavíkurbæjar.
Minnisblað um útleigu kynnt nefndinni og umræður um framkvæmd útleigu
Áform um útleigu á íbúðum í eigu Grindavíkur kynnt nefndinni. Einhugur er í nefndinni um að setja íbúðir í eigu Grindavíkurbæjar á leigumarkað eins fljótt og kostur er.
4. 17. júní 2025
Rætt um dagskrá í Grindavík í tilefni af þjóðhátíðardeginum.
Stefnt er að því að halda hófstillta dagskrá í íþróttamannvirkjum Grindavíkurbæjar í tilefni af þjóðhátíðardegi Íslendinga hinn 17. júní.
5. Aðstaða UMFG til æfinga og keppni
Rætt um aðstöðu UMFG og skuldir knattspyrnudeildar vegna leigu.
Fyrir liggur að knattspyrnudeild UMFG skuldar félögum á höfuðborgarsvæðinu fjármuni vegna afnota af knattspyrnumannvirkjum. Vonir standa til þess að niðurstaða um það hvort deildin fá fjárstuðning frá ríkissjóði fáist á næstu tveimur vikum.
6. Leikvellir og skólalóðir
Keyptur hefur verið ærslabelgur sem staðsettur verður á Ásabraut. Unnið er að hönnun fleiri leiksvæða.
eyptur hefur verið ærslabelgur sem staðsettur verður á Ásabraut. Unnið er að hönnun fleiri leiksvæða.
7. Fjárhagsaðstoð
Óskað er eftiraðstoð vegna leigutryggingar á íbúð í Þorlákshöfn á vegum Bríetar leigufélags. Leigutryggingin er kr 440.000.
Sótt um að félagsþjónusta sveitarfélagsins gefi út ábyrgðaryfirlýsingu vegna leigusamnings. Nefndin samþykkir að gefa út slíka yfirlýsingu sem tekur til ábyrgðar á tveggja mánaða leigu. Ef yfirlýsingin er ekki notuð fyrir 1.11.2025 þá fellur hún úr gildi.