Samfélagsnefnd - 2. fundur
- 04.11.2024
- Fundargerð
- Kl. 13:00 - 15:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 2
- Ritari: Nökkvi Már Jónsson
Nefndarmenn
- Ásrún Helga Kristinsdóttirformaður
- Eva Lind Matthíasdóttirvaraformaður
- Snædís Ósk Guðjónsdóttiraðalmaður
- Inga Fanney Rúnarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Nökkvi Már Jónssonsviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Samstarfssamningur um endurhæfingu
Samstarfssamningur um endurhæfingu kynntur samfélagsnefnd
Samningur um samstarf á sviði endurhæfingar lagður fram og kynntur.Samningurinn kveður á um víðtækt samstarf á sviði endurhæfingar og samhæfingu þjónustunnar þvert á kerfi.
2. Sérstakur húsnæðisstuðningur
Sérstakur húsnæðisstuðningur sveitarfélaga er lögboðið verkefni samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga. Nefndin þarf að leggja fram tillögur til bæjarstjórnar um skipan þessara mála. Hér vegast á þeir hagsmunir að styðja við búsetu í sveitarfélaginu og fjárhagsleg afkoma þess.
Lagðar fram tillögur að breyttum reglum um sérstakan húsnæðisstuðning sveitarfélagsins. Samfélagsnefnd leggur til að fyrir hverjar 1000 kr. sem viðkomandi umsækjandi fær frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun greiði sveitarfélagið kr. 800,-. Hámarks samtala almenns og sérstaks húsnæðisstuðnings verði kr. 80.000,-.
3. Húsnæðisáætlun framkvæmdanefndar um málefni Grindavíkur
Aðgerðaráætlun framkvæmdanefndar í húsnæðismálum lögð fram til kynningar.
Aðgerðaráætlun framkvæmdanefndar í húsnæðismálum er kynnt fyrir samfélagsnefnd. Samfélagsnefnd tekur undir bókun bæjarstjórnar í málinu og leggur sérstaka áherslu á að framlenging sértæks húsnæðisstuðnings fyrir tekjuminni Grindvíkinga verði tryggð hið allra fyrsta.
4. Börn á leik- og grunnskólaaldri
Lagt fram yfirlit um fjöld barna í sveitarfélaginu sundurliðað eftir skólastigum.
Lagt fram yfirlit um fjölda barna í sveitarfélaginu sundurliðað eftir aldri og skólastigum. Nefndin er hugsi yfir því hversu mörg börn á leik- og grunnskólaaldri eru enn með lögheimili í sveitarfélaginu með tilliti til farsældarþjónustu og aðgengi að félags- og frístundastarfi.
5. Dagskrá í Grindavík 10. nóvember 2024
Farið yfir dagskrá samverustunda 10. nóvember.
Farið var yfir þá liði sem eru á dagskrá í Grindavík hinn 10. nóvember 2024.
6. Starfsstyrkir á frístunda- og menningarsviði 2025
Rætt um starfsstyrki á frístunda- og menningarviði 2025.
Yfirlit yfir umbeðan starfsstyrki á frístunda- og menningarsviði vegna ársins 2025 lagt fram. Afgreiðslu málsins er frestað til næsta fundar.