Samfélagsnefnd - 6. fundur
- 24.03.2025
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 15:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 6
- Ritari: Nökkvi Már Jónsson
Nefndarmenn
- Ásrún Helga Kristinsdóttirformaður
- Eva Lind Matthíasdóttirvaraformaður
- Snædís Ósk Guðjónsdóttiraðalmaður
- Inga Fanney Rúnarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Nökkvi Már Jónssonsviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Útleiga á íbúðum í eigu Grindavíkurbæjar.
Málið kynnt nefndinni. Upplýst um stöðu á íbúðum og lagðir fram verkferlar til umsagnar.
Stefanía Sigríður Jónsdóttir situr fundinn undir þessum dagskrárlið. Samfélagsnefnd var gerð grein fyrir ástandi og stöðu félagslegs leiguhúsnæðis í sveitarfélaginu sem og íbúðum sveitarfélagsins við Austurveg 5.
2. Fjárhagsaðstoð
Sindri sækir um styrk vegna 6 mánaða líkamsræktarkort í Gym heilsu í Hafnarfirði kr. 31.990.
Sótt er um fjárhagsaðstoð til að mæta kostnaði vegna líkamsræktar. Samfélagsnefnd samþykkir umsókn að fjárhæð kr. 31.990.
3. Sjóarinn síkáti 2025
Rætt um hátíðahöld í tilefni af sjómannadeginum 1. júní 2025.
Hátíðahöld í tilefni af sjómannadeginum munu fara fram í Grindavík 1. júní nk. Sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs falið að vinna málið áfram.
4. Góðan daginn Grindvíkingur - Hlaðvarp Grindavíkurbæjar
Rætt um hlaðvarpið Góðan daginn Grindvíkingur sem endurvakið var í febrúar.
Hlaðvarpið „Góðan daginn Grindvíkingur“ kynnt og lagðar fram upplýsingar um framkvæmd- og fjármögnun þess.
5. Sértækur húsnæðisstuðningur
Farið yfir stöðuna. Sértækur húsnæðisstuðningur fellur niður í lok mars mánaðar. Við tekur almennur húsnæðisstuðningur HMS og eftir atvikum sérstakur húsnæðisstuðningur sveitarfélaga. Þá er upplýst að þjónustuteymi verði falið að styðja við afmarkaðan hóp sem er í sérstaklega viðkvæmri stöðu í þessu tilliti.
Sértækur húsnæðisstuðningur fellur niður í lok mars mánaðar. Við tekur almennur húsnæðisstuðningur HMS og eftir atvikum sérstakur húsnæðisstuðningur sveitarfélaga. Þá er upplýst að þjónustuteymi verði falið að styðja við afmarkaðan hóp sem er í sérstaklega viðkvæmri stöðu í þessu tilliti til næstu áramóta.