Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2601055

Bæjarráð Grindavíkur - 1701. fundur - 2.3.2026 00:00:00

Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.

Náttúruverndarstofnun vinnur að undirbúningi að endurskoðun friðlýsingar fyrir Reykjanesfólkvang.

Við endurskoðun friðlýsingar fyrir fólkvanginn verður lagt upp með að stofna þrjá sjálfstæða samstarfshópa fyrir hvert svæði sem vinna að því að skipta upp fólkvanginum í samræmi við sveitarfélagsmörk og endurnýja friðlýsingarskilmála fyrir hvert svæði.

Náttúruverndarstofnun óskar eftir fulltrúa frá Grindavíkurbæ í samstarfshópa sem vinna að umgjörð friðlýsingarinnar með fulltrúum stofnunarinnar til dæmis að afmörkun og vinnslu friðlýsingarskilmála.

Bæjarráð tilnefnir Eggert Sólberg Jónsson, sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs, í starfshópinn vegna lögsögu Grindavíkur.