Málsnúmer 2601037
Bæjarráð Grindavíkur - 1705. fundur - 3.10.2026 00:00:00
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Umsjónarmaður eigna og veitustjóri.
Í tengslum við fyrirhugað niðurrif altjónshúsa við Víkurbraut er tilefni til umræðu um möguleika á að skilja eftir veggstubba eða aðrar leifar til að minna á að þar hafi staðið hús. Mikilvægt er að huga að þessum atriðum áður en niðurrif fer fram og að litið verði til hugmynda um skipulag miðbæjarins og áhugaverða staði fyrir ferðamenn. Stefnt er að fundi með Batteríinu og í framhaldi verði útfært í útboðsgögnum hvaða kröfur eru gerðar um frágang að loknu niðurrifi. Hugmyndum er nánar lýst í tölvupósti frá forstöðumanni þjónustumiðstöðvar Grindavíkurbæjar dags. 6. mars 2026.
Bæjarráð samþykkir þessar tillögur að minjavörslu húshluta við Víkurbraut þar sem því verður við komið.