Málsnúmer 2511045
Innviðanefnd - 12. fundur - undefined
Fyrir hönd HS Orku sækir Axel Viðarsson um framkvæmdaleyfi fyrir viðgerð á heitavatnslögn (Njarðvíkuræð) sem liggur undir nýju hrauni í nágrenni Svartsengis. Framkvæmdasvæðið er um 300m að lengd en raska þarf hrauni sem liggur þétt upp við lagnaslóð sem endurgerð var eftir að hraun rann þar yfir.
Almennt er ekki þörf á framkvæmdaleyfi í viðgerðartilvikum veitukerfa enda lagnaleiðir skilgreindar og samþykktar í aðalskipulagi. Erindið er þó á borði innviðanefndar þar sem náttúruverndarstofnun bendir á að skylda sé að afla leyfis vegna röskunar á svæðum sem njóta sérstakrar verndar skv. 61.gr. náttúruverndarlaga og telst nýtt hraun þar undir. Meta skuli hvort brýn þörf sé á framkvæmdinni og þar með raska hrauni eða hvort aðrir valkostir séu í boði. Senda þarf stofnuninni útgefið leyfi.
Innviðanefnd metur viðgerðina mjög brýna. Nýr slóði liggur ofan á nýju hrauni meðfram lögninni. Reynt var að hylja lögnina með jarðvegi til verndar gegn hrauni og er það lag því á milli lagnarinnar og hraunsins. Finna þarf staðsetningu skemmdarinnar og grafa þar niður, ekki er um að ræða aðra valkosti. Eins og fram kemur í gögnum framkvæmdaraðila flytur lögnin varma til íbúa Suðurnesja og án viðgerðar er hætta á verulegri röskun á afhendingu á heitu vatni.
Byggt á þessum rökum og gögnum umsóknaraðila er skipulagsfulltrúa falið að gefa út framkvæmdaleyfi sbr. 13.gr. skipulagslaga og skv. reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012. Nefndin setur skilyrði um vandað verklag og að hraun sem grafið er frá sé sett til hliðar og notað í frágang.
Um fullnaðarafgreiðslu innviðanefndar er að ræða með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og viðauka 1.1., 2.gr. lið 8 í bæjarmálasamþykktar nr. 530/2022.