Málsnúmer 2511028
Innviðanefnd - 12. fundur - undefined
Lögð er fram tillaga að endurnýtingu jarðvegsefna sem falla kunna til við m.a. áframhaldandi sprunguviðgerðir og áformað niðurrif húsa. Bærinn hefur starfsleyfi fyrir millilager í Eldvarpahraunsnámu þar sem geyma má m.a. jarðvegsefni sem þarf að endurnýta síðar. Eigna- og veitustjóri ásamt innviðasviði óska eftir því að stytta ferlið og minnka þar með kolefnissporið með því að nýta efnið til landmótunar. Sveitarfélagið mun sjá um yfirborðsfrágang eftir að efni hefur verið sett á rétta staði. Áform hafa verið borin undir sprunguviðgerðarteymið.
Innviðanefnd tekur undir að mikilvægt sé að minnka kolefnissporið og samþykkir að nýta jarðefni í landmótun.
Þar sem manir á geymslusvæði og við Sundabraut eru í samræmi við skipulag er til staðar leyfi til þess að bæta í þær en nefndin minnir á að sækja þarf um framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmdunum. Það sama á við um svæðið syðst í Hlíðarhverfi en að mati nefndar telst íborningur á svæðið hluti af frágangi hverfisins og í samræmi við skipulag.
Varðandi uppfyllingar sunnan Vesturbrautar vegna sigs og framlengingu manar norðan spennistöðvar HS Veitna telur nefndin að framkvæmdirnar kalli ekki eftir gerð deiliskipulags og nýta beri 8.gr. reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdaleyfi, þá mun innviðanefnd láta fara fram grenndarkynningu skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 áður en ákvörðun um veitingu leyfis er tekin. Sækja þarf um framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmdunum.
Nefndin telur að gera þurfi breytingu á skipulagi vegna hóls í Víðihlíðarhverfi. Minnt er á að senda þarf inn umsókn um breytingu á skipulagi.
Lögð er fram tillaga að endurnýtingu jarðvegsefna sem falla kunna til við m.a. áframhaldandi sprunguviðgerðir og áformað niðurrif húsa. Bærinn hefur starfsleyfi fyrir millilager í Eldvarpahraunsnámu þar sem geyma má m.a. jarðvegsefni sem þarf að endurnýta síðar. Eigna- og veitustjóri ásamt innviðasviði óska eftir því að stytta ferlið og minnka þar með kolefnissporið með því að nýta efnið til landmótunar. Sveitarfélagið mun sjá um yfirborðsfrágang eftir að efni hefur verið sett á rétta staði. Áform hafa verið borin undir sprunguviðgerðarteymið.
Fyrirhugaðir staðir og aðgerðir eru skv. meðfylgandi loftmyndum: 1) uppfyllingar austan Vesturbrautar vegna sigs af völdum jarðhræringa, 2) framlenging manar norðan Víkurbrautar 5, Spennistöðvar HS Veitna, 3) hóll á raskað svæði fyrir utan lóð Víðigerðis 23 (óbyggt), 4) Manir á geymslusvæði, 5) framlenging manar við Sundabraut, 6) landmótun/íborningur sunnan Hlíðahverfis (frágangur á svæði).