Málsnúmer 2510022
Bæjarstjórn Grindavíkur - 589. fundur - undefined
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Forstöðumaður þjónustumiðstöðvar Grindavíkurbæjar, slökkviliðsstjóri, skipulagsfulltrúi og hafnarstjóri.
Birgitta Rán vék af fundi við umræður og afgreiðslu málsins kl. 14:33-14:43
Til máls tóku: Ásrún, forstöðumaður þjónustumiðstöðvar, Hallfríður og slökkviliðsstjóri.
Lögð fram tilboð í breytingar á starfsmannaaðstöðu slökkvistöðvar að Hafnargötu 13.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að taka lægsta tilboði, sem er frá HE Helgason að fjárhæð 65.428.864 kr. Einnig er gert ráð fyrir að vinna verkið árin 2025 og 2026 og verður sett í fjárhagsáætlun 2026 fjármagn til að mögulegt sé að klára verkið.
Tilboð vegna verðkönnunar liggja fyrir vegna breytinga á starfsmannaaðstöðu slökkvistöðvar að Hafnargötu 13.