Málsnúmer 2510021
Bæjarstjórn Grindavíkur - 589. fundur - undefined
Til máls tók: Ásrún.
Thorfish ehf., kt. 420369-0429, Hafnargötu 12, 240 Grindavík, á í viðræðum við aðila með heimilisfesti utan Grindavíkur um sölu á skipinu Valdimar GK-195, skipaskrárnúmer 2354.
Verði af sölu skipsins er miðað við að það verði selt fyrir kr. 10.000.000 staðgreitt við afhendingu í því ástandi sem það nú er í án aflahlutdeilda, aflamarks og aflareynslu.
Með vísan til 3. mgr. 12. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða er Grindavíkurbæ boðinn forkaupsréttur að skipinu.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að falla frá forkaupsrétti.