Málsnúmer 2510007
Bæjarstjórn Grindavíkur - 593. fundur - undefined
Til máls tók: Ásrún.
Innviðanefnd tók fyrir og afgreiddi óverulega aðalskipulagsbreytingu vegna vegaöryggis á Norðurljósavegi og Grindavíkurvegi. Unnið hefur verið úr umsögnum um skipulagstillöguna varðandi breytta veglínu Norðurljósavegar og tengingu vegarins við Grindavíkurveg, með það að markmiði að bæta umferðaröryggi.
Innviðanefnd gerði ekki athugasemd við tillöguna vísaði henni til fullnaðarafgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða aðalskipulagstillöguna og að málsmeðferð hennar sé í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Unnið hefur verið úr umsögnum um óverulega breytingu á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar varðandi breytta veglínu Norðurljósavegar og tengingu vegarins við Grindavíkurveg, með það að markmiði að bæta umferðaröryggi. Tillagan hefur verið uppfærð með tilliti til ábendinga í umsögnum ásamt því að vera afgreidd úr innviðanefnd sem vísaði henni til fullnaðarafgreiðslu bæjarstjórnar.