Málsnúmer 2510005
Bæjarráð Grindavíkur - 1692. fundur - undefined
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fyrir árið 2026. Sjóðnum er heimilt að fjármagna framkvæmdir sem snúa að öryggi ferðamanna, náttúruvernd, viðhaldi og uppbyggingu ferðamannastaða og -leiða, einnig undirbúnings- og hönnunarvinnu sem er nauðsynleg vegna áðurgreindra framkvæmda.
Erindi er lagt fram til kynningar. Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fyrir árið 2026. Sjóðnum er heimilt að fjármagna framkvæmdir sem snúa að öryggi ferðamanna, náttúruvernd, viðhaldi og uppbyggingu ferðamannastaða og -leiða, einnig undirbúnings- og hönnunarvinnu sem er nauðsynleg vegna áðurgreindra framkvæmda.
Starfshópur bæjarins ''um varðveislu minja og vernd mannvirkja'' mun sækja um styrk til að framkvæma uppbyggingu og öryggisbætur á ferðamannastöðum í bænum sem hafa orðið fyrir áhrifum af náttúruhamförum. Verkefnið felur í sér að gera svæðin aðgengileg, örugg og fræðandi fyrir ferðamenn og íbúa, með uppsetningu gönguleiða, útsýnispalla, bílastæða og upplýsingaskilta. Markmiðið er að tryggja öruggt og upplýsandi aðgengi að náttúruhamfarasvæðum sem hafa mikla fræðslu- og ferðamannaþýðingu, án þess að raska náttúru eða öryggi gesta.