Málsnúmer 2509026
Innviðanefnd - 11. fundur - 10.7.2025 00:00:00
Lagt er fram bréf dags.10.september 2025 sem barst frá forstjóra NTÍ fyrir hönd stjórnar og er beint að skipulagsyfirvöldum og sveitarstjórnum landsins. Bréfið fjallar að mestu um 16. gr. laga nr. 55/1992 um Náttúruhamfaratryggingu, og heimild NTÍ til að lækka bætur eða synja bótakröfu vegna mannvirkja á fyrirfram þekktum hættusvæðum. Minnt er að lokum á ábyrgð sveitarstjórnar á skipulagsgerð og vill NTÍ vekja sérstaka athygli á eftirfarandi hlutverkum sveitarfélaga sem er að:
1. tryggja að áhættumat náttúruvár (sérstaklega vegna vatns- og sjávarflóða) sé uppfært og tekið með beinum hætti inn í aðalskipulag, deiliskipulag og skilmála
byggingarleyfa;
2. haga skipulagi þannig að forvarnir og varnir (t.d. gólfkóti, flóðvarnarlausnir, fráveitukerfi, varúðarmörk) séu markvisst skilgreindar og fjármagnaðar áður en
framkvæmdir hefjast;
3. upplýsa byggingarleyfishafa og kaupendur eigna skýrt um þekkta áhættu og mögulegar afleiðingar, þ.m.t. takmarkanir á bótarétti samkvæmt 16. gr.; og
4. leita eftir samráði við sérhæfð stjórnvöld í tengslum við skipulagsákvarðanir (s.s. HMS, Skipulagsstofnun, Vegagerðina og Veðurstofu Íslands) eftir því sem við á.
Erindi lagt fram.