Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2509010

Innviðanefnd - 10. fundur - 9.8.2025 00:00:00


Óskað er eftir umsögn vegna heildarendurskoðunar á Aðalskipulagi
Sveitarfélagsins Voga 2024-2040, mál nr. 1468/2024 í Skipulagsgáttinni. Beiðnir um umsagnir á fyrri stigum máls fór framhjá sviðinu.

Í aðalskipulagi beggja sveitarfélaga hefur um árabil verið afmarkað svæði þar sem sveitarfélagamörk eru talin óljós. Alls er um að ræða um 24 km2 svæði sem sýnt er á dreifbýlisuppdrætti núv. tillögu. Í meðfylgjandi greinargerð í kafla 1.6, s.5 stendur:

„Ágreiningur er uppi um landamerki jarða og þar með sveitafélagsmörk Sveitarfélagsins Voga og Grindavíkurbæjar, en það svæði sem óvissa er um er um 24 km2. Unnið verður að samkomulagi um mörkin eða þau leyst með málaferlum og verður aðalskipulagið uppfært þegar sú niðurstaða liggur fyrir.“

Sveitarfélagið Vogar hefur ekki leitað til Grindavíkurbæjar vegna málsins en nefndin tekur undir að brýnt sé að leysa óútkljáð landamerki. Nefndin samþykkir fyrirliggjandi tillögu að umsögn um málið og felur skipulagsfulltrúa að senda hana inn á Skipulagsgátt undir málinu.


Óskað er eftir umsögn vegna heildarendurskoðunar á Aðalskipulagi
Sveitarfélagsins Voga 2024-2040, mál nr. 1468/2024 í Skipulagsgáttinni. Beiðnir um umsagnir á fyrri stigum máls fór framhjá sviðinu.