Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2509007

Bæjarráð Grindavíkur - 1689. fundur - 9.9.2025 00:00:00


Bæjarráð telur dvalarsamninga vera mikilvægt úrræði sem er til þess fallið að auðvelda þeim sem nýta úrræðið að halda tengslum við Grindavík. Úrræðið er þannig mikilvægur þáttur í að stuðla að endurreisn samfélagsins í Grindavík þegar jarðhræringunum á Reykjanesi lýkur.
Bæjarráð telur liggja skýrt fyrir að hollvinir sem gert hafa dvalarsamning bíða niðurstöðu um framlengingu þessa úrræðis og er því mikilvægt að sem fyrst verði tekin endanleg ákvörðun um að dvöl verði áfram leyfð í umræddu húsnæði.
Í erindinu kemur fram að framlenging dvalarsamninga geti miðast við 3-6 mánuði, þ.e. á tímabilinu 1. október til 31. mars.
Bæjarráð bendir á að páskar eru á næsta ári í fyrstu viku apríl. Æskilegt væri að gildistími dvalarsamninga nái því að lágmarki til 1. maí 2026. Einnig leggur bæjarráð áherslu á að ákvörðun um að bjóða upp á leigusamninga í stað dvalarsamninga liggi tímanlega fyrir á næsta ári, til að veita hollvinum sem bestan fyrirsjáanleika.