Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2508020

Bæjarráð Grindavíkur - 1688. fundur - 9.2.2025 00:00:00


Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Skipulagsfulltrúi Grindavíkurbæjar.

Basecamp Iceland sækir um að fá leyfi til þess að reisa veislutjald í hálfan dag við norðurenda Kleifarvatns. Þetta er 70 manna hópur og verður viðburðurinn 14. október, ef veður leyfir. Hópurinn mun snæða þar hádegismat áður en haldið er af stað í göngu í nágrenninu. Mögulega verða 2 fólksbílar og 2 kerrur með ferðaklósettum við tjaldið.

Bæjarráð setur sig ekki upp á móti viðburði en bendir á að umsóknaraðili þurfi að sækja um leyfi hjá Umhverfisstofnun þar sem þetta er á friðlýstu svæði.


Basecamp Iceland sækja um að fá leyfi til þess að reisa veislutjald (leigt hjá Skátunum) í hálfan dag við norðurenda Kleifarvatns, á mölinni þar, sjá staðsetningu í viðhengi. Þetta er 70 manna hópur og verður viðburðurinn 14. október (ef veður leyfir). Hópurinn mun snæða þar hádegismat áður en haldið er af stað í göngu í nágrenninu. Mögulega verða 2 fólksbílar og 2 kerrur með ferðaklósettum við tjaldið.