Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2508012

Bæjarstjórn Grindavíkur - 587. fundur - undefined


Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.

Til máls tóku: Ásrún, Guðjón, Hallfríður, Inga Fanney og Birgitta Hrund.

Nýlega er liðinn umsóknarfrestur um fjárstuðning til smærri atvinnurekenda í Grindavík og úthlutun er lokið. Stuðningurinn er einkum ætlaður einyrkjum og smærri fyrirtækjum sem voru með starfsemi í Grindavík 10. nóvember 2023, eru í rekstri og hafa a.m.k. einn starfsmann á launaskrá og veltu undir 500 milljónum króna. Fjármunum skal varið til verkefna sem snúa m.a. að markaðssetningu, vöruþróun og nýsköpun. Styrkjum er hvorki ætlað að kaupa upp eignir né að greiða niður skuldir. Um er að ræða sérstakt átaksverkefni í Sóknaráætlun Suðurnesja. Heildarframlag ríkisins til þessarar aukaúthlutunar er 50 m.kr.


Rekstraraðilar í Grindavík hafa möguleika að sækja um stuðning í gegnum Sóknaráætlun Suðurnesja.

Nýlega er liðinn umsóknarfrestur um fjárstuðning til smærri atvinnurekenda í Grindavík. Stuðningurinn er einkum ætlaður einyrkjum og smærri fyrirtækjum sem voru með starfsemi í Grindavík 10. nóvember 2023, eru í rekstri og hafa a.m.k. einn starfsmann á launaskrá og veltu undir 500 milljónum króna. Fjármunum skal varið til verkefna sem snúa m.a. að markaðssetningu, vöruþróun og nýsköpun. Styrkjum er hvorki ætlað að kaupa upp eignir né að greiða niður skuldir. Um er að ræða sérstakt átaksverkefni í Sóknaráætlun Suðurnesja. Heildarframlag ríkisins til þessarar aukaúthlutunar er 50 m.kr.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu SSS: Uppbyggingarsjóður - SSS
Þessu tengt er þess vænst að Byggðastofnun muni á næstunni auglýsa eftir umsóknum frá fyrirtækjum í Grindavík. Til úthlutunar í þeirri úthlutun verða 180 m.kr.