Málsnúmer 2508004
Innviðanefnd - 10. fundur - 9.8.2025 00:00:00
Fyrir hönd Eldvarpa sækir Sigríður S. Sigþórsdóttir um byggingarheimild fyrir innanhúsbreytingu. Um er að ræða breytingar á núverandi búningsklefum og meðferðarrými fyrir psoriases sjúklinga. Í eldri teikningum og gögnum er þetta verkefni skráð sem húðlækningastöð en nú beinast áherslur Hótel Silica að hótelrekstri, en þar er einnig starfssemi húðlækninga.
Innviðanefnd staðfestir að byggingaráformin eru í samræmi við skipulag á svæðinu. Um er að ræða fullnaðarafgreiðslu innviðanefndar með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og viðauka 1.1. bæjarmálasamþykktar nr. 530/2022. Byggingarfulltrúi tekur við málinu í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Fyrir hönd Eldvarpa sækir Sigríður S. Sigþórsdóttir um byggingarheimild fyrir innanhúsbreytingu. Um er að ræða breytingar á núverandi búningsklefum og meðferðarrými fyrir psoriases sjúklinga.
Í eldri teikningum og gögnum er þetta verkefni skráð sem Húðlækningastöð en nú beinast áherslur Hótel Silica að hótelrekstri, en þar er einnig starfssemi húðlækninga.