Málsnúmer 2507023
Bæjarstjórn Grindavíkur - 592. fundur - undefined
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og Fjalar Sigurðarson, ráðgjafi.
Til máls tóku: Ásrún, Gunnar Már, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Fjalar, Hallfríður, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, bæjarstjóri, Hjálmar, Gunnar Már, Inga Fanney, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, Guðjón, Birgitta Hrund og Birgitta Rán.
Fjárhagsáætlun Grindavíkur og stofnana 2026-2029 er lögð fram til síðari umræðu.
Bókun
Áætlunin ber það með sér að starfsemi Grindavíkurbæjar muni aukast í skrefum yfir áætlunartímabilið. Gert er ráð fyrir fjölgun íbúa og er gert ráð fyrir að íbúafjöldi verði 2.321 í lok árs 2029.
Áætlun um tekjur af útsvari byggir á aukningu íbúa. Fasteignagjöld verða lögð á árið 2026 en síðustu 2 ár hafa fasteignagjöld ekki verið lögð á eignir innan þéttbýlis.
Gert er ráð fyrir að rekstarkostnaður aukist með aukinni starfsemi. Á áætlunartímabilinu mun ekki nást jafnvægi milli tekna og gjalda og gert er ráð fyrir rekstarhalli öll árin.
Áætluð rekstrarniðurstaða í samanteknum reikningsskilum A- og B-hluta í þúsundum króna:
2026 2027 2028 2029
303.042 605.106 497.323 241.974
Verulega gengur á handbært fé Grindvíkurbæjar, bæði handbært fé til rekstar og tjónabætur frá NTÍ. Handbært fé í upphafi árs 2026, án samstarfsverkefna, er 4.754.722 þús. króna. Þar af er bótasjóður 2.936.179 þús. króna. Í árslok 2029 er gert ráð fyrir að handbært fé verði 866.191 þús. króna og bótasjóður tæmdur.
Tillaga
Lagt er til að bæta inn í áætlunina, á lið 06801-9904, kr. 6.300.000 vegna leigu, 2.000.000 kr. vegna Þorrablóts og allt að 600.000 kr. í auglýsingaskilti vegna bikarúrslita KKÍ.
Tillagan er samþykkt samhljóða.
Bæjarstjórn samþykkir áætluna með 6 atkvæðum, Birgitta Hrund situr hjá.
Bókun bæjarfulltrúa
Undirrituð situr hjá við atkvæðagreiðslu um fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar og óskar eftir að það verði bókað sérstaklega í fundargerð.
Ég vil í upphafi þakka starfsfólki Grindavíkurbæjar fyrir vandaða og góða vinnu; í áætluninni eru fjölmörg mikilvæg og jákvæð atriði sem endurspegla vilja til uppbyggingar og framtíðarsýnar fyrir bæjarfélagið.
Ástæða þess að ég sit hjá er sú að mér hugnast ekki þau áform sem fram koma í fjárhagsáætlun um að hefja skólahald innan Grindavíkur haustið 2026, miðað við þá óvissu sem nú ríkir. Þrátt fyrir að ég skilji og virði sjónarmið þeirra sem vilja taka skref í átt að uppbyggingu bæjarfélagsins, tel ég ekki rétt að stíga þetta skref á næsta skólaári.
Á þessum tímapunkti er enn mikil óvissa um öryggi, og fyrirliggjandi áhættumat bendir til þess að ekki sé ábyrgt að hefja skólastarf við núverandi aðstæður.
Jafnframt liggur ekki fyrir hversu mörg börn muni búa í Grindavík, hvort það sé fjárhagslega ábyrgt að standa undir skólahaldi með tilheyrandi kostnaði, faglegri skipulagningu og starfsmannahaldi.
Ekki er hægt að gera raunhæfar áætlanir um íbúaþróun þar sem skortir upplýsingar um vilja og áform fólks til að flytjast aftur til bæjarins.
Þá er einnig óljóst hvernig og hvenær endurkaup íbúðarhúsnæðis í eigu Þórkötlu fasteignafélags mun fara fram og hvenær húsnæði í þeirra eigu verður raunhæfur búsetukostur.
Að síðustu ríkir áfram veruleg óvissa um þróun náttúruváa á Reykjanesskaga, þar á meðal með tilliti til kvikusöfnunar, sprunguhreyfinga og mögulegra eldsumbrota.
Ég tel mikilvægt að lögbundinni skyldu sveitarfélagsins um skólahald verði fullnægt með öðrum leiðum að svo stöddu, til dæmis með því að tryggja börnum sem mögulega verða búsett í Grindavík skólavist í öðrum sveitarfélögum, þar til forsendur fyrir skólahaldi innan bæjarins eru skýrari og öruggari.
Þá vil ég taka fram að ég styð heilshugar uppbyggingu Grindavíkur til framtíðar, en tel að of mörgum grundvallarspurningum sé ósvarað á þessu stigi til að ég geti, með góðri samvisku, samþykkt fjárhagsáætlunina í heild sinni.
Í lokin er ítrekað að full virðing er borin fyrir ólíkum sjónarmiðum bæjarfulltrúa og annarra sem hafa tekið þátt í umræðu um uppbyggingu sveitarfélagsins, enda byggist farsæl og örugg endurreisn Grindavíkur á virku samtali og góðri samvinnu allra.
Birgitta H. Ramsay Káradóttir
Fjalar Sigurðarson mætir á fundinn undir þessum dagskrárlið.
Fjárhagsáætlun Grindavíkur og stofnana 2026-2029 er lögð fram til síðari umræðu.