Málsnúmer 2506030
Bæjarráð Grindavíkur - 1685. fundur - 7.1.2025 00:00:00
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Ekki er gert ráð fyrir styrkjum vegna landsliðsverkefna Grindvíkinga í fjárhagsáætlun 2025 eins og fyrri ár þar sem ekki var gert ráð fyrir að að þörf væri á slíku.
Bæjarráð samþykkir viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2025 að fjárhæð 250.000 kr. sem fjármagnaður verður með lækkun á handbæru fé.
Sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs og samfélagsnefnd er falið að úthluta þessum styrkjum í samræmi við gildandi verklagsreglur.
Ekki er gert ráð fyrir styrkjum vegna landsliðsverkefna í fjárhagsáætlun. Hver er vilji bæjarráðs í þeim efnum?