Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2505023

Innviðanefnd - 8. fundur - undefined


Lögð til kynningar drög að bráðabirgðalagnaleið fyrir rafstreng sem HS Veitur áforma að leggja. Rafstrengurinn er ofanjarðar. HS Veitur hafa núþegar hafið undirbúning fyrir lagninguna. Framkvæmdin er í takt við óskir bæjarins um aukið raforkuöryggi, sóttst er eftir afstöðu nefndar.

Í gildandi aðalskipulagi Grindavíkur er gert ráð fyrir háspennulögn í jörðu. Áform eru um að gera lagnaleið í austurhlíð Þorbjarnar, annars vegar með skurði fyrir raf- og fjarskiptalagnir og hins vegar fyrir heitt og kalt vatn. Innviðanefnd gengur út frá því að áframhaldandi vinna að varanlegum streng haldi áfram og klárist fljótt. Innviðanefnd bendir á að lagning strengsins megi ekki verða til þess að tafir verði á öðrum nauðsynlegum innviðaframkvæmdum og þá skiptir máli að Arfadalsstrengurinn verði nýttur sem varastrengur og að hann verði yfirfarinn og öruggur.

Vinna við lagningu bráðabirgðastrengs er þegar hafin án tilskilinna leyfa, landeigenda, Vegagerðarinnar, Varnagarðateymis og umsögn náttúruverndarstofnunar. Einnig hefur framkvæmdaleyfisumsókn ekki enn borist. Framkvæmdaleyfið verður samþykkt þegar öll tilskilin gögn og leyfi hafa borist.

Bæjarstjóra falið að vinna málið áfram.


Lögð til kynningar drög af bráðabirgða lagnaleið fyrir rafstreng sem HS Veitur áforma að leggja. Rafstrengurinn er ofanjarðar. HS Veitur hafa núþegar hafið undirbúning fyrir lagninguna. Framkvæmdin er í takt við óskir bæjarins um aukið raforkuöryggi sóttst er eftir afstöðu nefndar.