Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2505020

Bæjarstjórn Grindavíkur - 585. fundur - undefined


Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, Birgitta Rán, bæjarstjóri, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusvið, Hjálmar, Gunnar Már og Birgitta Hrund.

Lagt fram bréf frá Framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ, dags. 13. maí 2025 um ákvörðun nefndarinnar um að ekki verði skólastarf í Grindavík skólaárið 2025-2026.

Bæjarstjórn vekur athygli á að viðgerðir skólamannvirkja eru í fullum gangi og bindur vonir við að hægt verði að hefja skólastarf í Grindavík þegar aðstæður leyfa.


Borist hefur erindi frá framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa við Grindavík um að sami háttur verði hafður á varðandi leik- og grunnskólahald í Grindavík skólaárið 2025-2026 eins og verið hefur á yfirstandandi skólaári.