Málsnúmer 2504022
Bæjarráð Grindavíkur - 1681. fundur - 5.6.2025 00:00:00
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, umsjónarmaður þjónustumiðstöðvar (Teams), skipulagsfulltrúi og hafnarstjóri.
Við stöðuskoðun á mannvirkjum Grindavíkurvallar þann 30. apríl voru engar skemmdir sjáanlegar og ekki voru merki um hreyfingar. Öll mannvirki eru talin örugg til notkunar. Þetta á við um búningsklefa, áhorfendastúku og knattspyrnuvöllinn sjálfan.
Mál stofnað í framhaldi af umræðum um gervigrasvöll á bæjarstjórnarfundi.