Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2504014

Bæjarráð Grindavíkur - 1681. fundur - 5.6.2025 00:00:00


Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Skipulagsfulltrúi og hafnarstjóri.

Raforkuöryggi og raforkuframboð í Grindavík er ófullnægjandi miðað við þá orkuþörf sem nú er kallað er eftir. Núverandi ástand og afkastageta á rafstreng á svo kallaðri Arfadalsleið til Grindavíkur er óboðleg og hefur neikvæð áhrif á endurreisn atvinnulífs og þar með endurreisn bæjarins. Strengur sem liggur í svokallaðri Arfadalsleið var lagður á bert hraun og hann fergjaður með þeim hætti að hann getur fyrirvaralaust farið í sundur og þar með er bærinn rafmagnslaus. Ekki er á það treystandi að Landsnet leggi til varaaflsvélar sem og dæmin hafa margsýnt. Eitt að forgangsverkefnum sem tiltekið er í lið 5 í Aðgerðalista Grindavíkurbæjar er raforkuöryggi.

Bæjarstjóra er falið að vinna málið áfram.


Raforkuöryggi og raforkuframboð í Grindavík er ófullnægjandi miðað við þá orkuþörf sem nú er kallað er eftir. Núverandi ástand og afkastageta á rafstreng á svo kallaðri Arfadalsleið til Grindavíkur er óboðleg og hefur neikvæð áhrif á endurreisn atvinnulífs og þar með endurreisn bæjarins. Strengur sem liggur í svokallaðri Arfadalsleið var lagður á bert hraun og hann fergjaður með þeim hætti að hann getur fyrirvaralaust klippts í sundur og þar með er bærinn rafmagnslaus. Ekki er á það treystandi að Landsnet leggi til varaaflsvélar sem og dæmin hafa margsýnt. Eitt að forgangsverkefnum sem tiltekið er í lið 5 í Aðgerðalista Grindavíkurbæjar er raforkuöryggi og vinna þarf með öllum ráðum að koma þessum málum í réttan farveg.