Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2503031

Bæjarráð Grindavíkur - 1679. fundur - 4.3.2025 00:00:00


Lögð fram drög að frumvarpi um breytingu á lögum um veiðigjald.

Bókun
Bæjarráð Grindavíkur minnir á að sjávarútvegsfyrirtæki í Grindavík glíma nú við fordæmalausar áskoranir vegna náttúruhamfara. Verði frumvarpið óbreytt að lögum má áætla að álögur á útgerðir í bænum aukist um tæplega 600 m.kr. á ári. Bæjarráð vísar til sviðsmyndagreiningar Deloitte, sem unnin var fyrir forsætisráðuneytið, sem sýnir vel að það er langt frá því að vera sjálfgefið að sjávarútvegur verði áfram sú undirstöðuatvinnugrein í Grindavík sem raunin er nú.
Atvinnulíf í bænum er í viðkvæmri stöðu en aflaheimildir hafa þó ekki flust frá Grindavík þrátt fyrir náttúruhamfarir. Það er jákvætt að starfsemi sjávarútvegsfyrirtækja á þessari vetrarvertíð er að færast nær því umfangi sem áður var. Bæjarráð varar eindregið við því að aðgerðir stjórnvalda veiki forsendur atvinnulífs í bænum og leggur því til að framlagningu frumvarps til veiðigjalda verði frestað. Bæjarráð leggur einnig áherslu á að áður en frumvarpið verður að lögum liggi fyrir vandað mat á áhrifum tollabreytinga í alþjóðaviðskiptum.
Að lokum tekur bæjarráð undir bókun Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga frá 28. mars 2025, þar sem lagst er gegn samþykkt frumvarpsins. Jafnframt vísar bæjarráð til greiningar KPMG sem unnin var fyrir samtökin. Í greiningunni er bent á margvíslegar neikvæðar afleiðingar fyrir nærsamfélög sem hlotist geta af því að auka álögur á atvinnulíf. Greiningin undirstrikar einnig vel að Grindavíkurbær er í hópi þeirra sveitarfélaga sem reiða sig hvað mest á sjávarútveg og fiskvinnslu. Mikilvægi þessarar starfsemi hefur jafnframt fengið auki vægi vegna þeirra erfiðu aðstæðna sem nú eru í bæjarfélaginu.


Geri ráð fyrir að bæjarráð vilji fjalla um málið og mögulega veita umsögn sem sett verður í samráðsgáttina. Mikið hagsmunamál fyrir grindavíksar útgerðir þar sem um er að ræða viðbótargjaldtöku í formi veiðigjalda upp á 400 til 600 milljónir árlega samkvæmt bráðabirgðaútreikningi.