Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2501011

Innviðanefnd - 4. fundur - undefined


Landsnet sækir um framkvæmdaleyfi fyrir breytingu á Svartsengislínu 1, sem felur í sér að reisa nýja stálmastralínu austan við núverandi leið yfir hraun, alls um 2,3 km., sbr. nánari lýsingu í umsókn um framkvæmdaleyfi ásamt fylgigögnum með umsókn.

Tilgangur framkvæmdarinnar er að bregðast við yfirvofandi náttúruvá og verja mikilvæga innviði gegn hraunrennsli. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi aðalskipulag Grindavíkurbæjar 2018-2032.

Fyrir liggur undanþága frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti, dags. 13. janúar 2025, frá málsmeðferð samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum framkvæmda og áætlana, nr. 111/2021, sbr. 1. mgr. 29. gr. laganna. Skiplagsnefnd samþykkir veitingu framkvæmdaleyfisins og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfið þegar samþykki landeiganda liggur fyrir. Í samræmi við viðauka 1.1 við bæjarmálasamþykkt Grindavíkurbæjar er um fullnaðarafgreiðslu að ræða.


Landsnet hugar að því að ráðast í breytingar á Svartsengislínu 1 áður en næstu mögulegu eldsumbrot verða.

Eini tilgangur breytinganna er að bregðast við yfirvofandi náttúruvá, til að verja mikilvæga innviði í þágu almannavarna. Vonir Landsnets standa til að hægt verði að byrja framkvæmdir upp úr miðjum janúar.